Uppstokkun á Spáni Guðsteinn Bjarnason skrifar 19. desember 2015 07:00 Pablo Iglesias, leiðtogi Podemos, á kosningafundi í Galisíu á miðvikudaginn var. vísir/epa
Sigurvegarar þingkosninganna á Spáni verða nýju flokkarnir tveir, Podemos og Borgaraflokkurinn, ef marka má skoðanakannanir. Hinum hægrisinnaða Þjóðarflokki forsætisráðherrans Mariano Rajoy er ekki spáð nema fjórðungi atkvæða, og gamli höfuðandstæðingurinn, Sósíalistaflokkurinn, virðist ekki ætla að fá nema fimmtung atkvæða. Saman voru þessir tveir gömlu flokkar yfirleitt með 70 til 80 prósent atkvæða, en súpa nú seyðið af mikilli óánægju fólks vegna kreppunnar á Spáni, sem þar hefur bitnað illa á almenningi árum saman. Pablo Iglesias, sem stofnaði Podemos-hreyfinguna haustið 2014, virðist reyndar ekki ætla að ná þeim þriðjungi atkvæða sem lengi vel stefndi í. Skoðanakannanir sýna fimmtung, sem dugar Iglesias vel til þess að ná lykilstöðu í spænskum stjórnmálum. Nafn flokksins þýðir „Við getum“ og þar er greinilega verið að vísa til slagorðs Baracks Obama, „Yes, we can!“ Langvarandi efnahagserfiðleikar Spánverja í kjölfar kreppunnar 2008 hafa hrært upp í stjórnmálunum. Gömlu flokkarnir eiga ekki upp á pallborðið, hvorki hægriflokkur forsætisráðherrans, sem sigraði með yfirburðum í síðustu kosningum, árið 2011, né Sósíalistaflokkurinn sem var við völd þegar kreppan reið yfir. Flokkurinn hefur barist gegn niðurskurði og aðhaldsaðgerðum ríkisins, ekki ósvipað SYRIZA-bandalaginu á Grikklandi. Atvinnuleysi á Spáni er enn rúmlega 20 prósent og hefur ástandið skánað hægt frá því það var í hámarki í 27 prósentum árið 2013. Annar tiltölulega nýr flokkur virðist sömuleiðis á góðri siglingu. Þetta er Borgaraflokkurinn, sem er tíu ára gamall flokkur frjálslyndra umbótasinna á vinstri kantinum sem styðja Evrópusambandið og eru andvígir þjóðernishreyfingum í Katalóníu og víðar. Flokkurinn var upphaflega aðeins virkur í Katalóníu, en náði fljótt vinsældum á landsvísu eftir að ákveðið var að bjóða fram í öllum kjördæmum.
Mest lesið Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Innlent Engu um að kenna nema „handónýtu kerfi“ Innlent Verður kominn í rafrænt eftirlit þremur árum eftir manndrápið Innlent „Ekki næstum því allir íbúar með þetta app“ Innlent Kennarar greiða atkvæði um verkfall Innlent Banaslysið aftur til héraðssaksóknara Innlent Drottningin baðst afsökunar á því að geta ekki boðið betra veður Innlent Varaþingmaður Miðflokksins vill skoða að stofna íslenskt varnarlið Innlent Yazan og fjölskylda komin með vernd Innlent Skorti langtímarannsóknir á áhrifum Ozempic og Wegovy Innlent Fleiri fréttir Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Lögregla upplýsir ekki um notkun andlitsgreiningarhugbúnaðar Koma sér í skjól undan fellibylnum Milton Sjúkrahús í Kaliforníu ákært fyrir að neita óléttri konu um neyðaraðstoð Hlutu Nóbelinn fyrir framlag til vélræns náms Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Grunaði í máli Madeleine McCann sýknaður af öðrum brotum Svaraði spurningum um Netanyahu, Pútín og reynslu af skotvopnum „Þú hugsar bara: Hver var skotinn?” Ekkert lát á aðgerðum Ísraelshers gegn Hamas og Hezbollah „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Sjá meira