Erlent

41 látinn eftir rútuslys í Argentínu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Rúta með fimmtíu manns innanborðs keyrði fram af brú í Argentínu fyrr í dag.
Rúta með fimmtíu manns innanborðs keyrði fram af brú í Argentínu fyrr í dag. Vísir/Getty
41 er látinn eftir að rúta keyrði fram af brú í norðvestur-Argentínu fyrr í dag.

Talið er að um 50 manns hafi verið um borð í rútunni sem var að ferja landamæraverði. Rútan keyrði fram af brú og féll niður um fimmtán metra í gil.

Björgunaraðilar eru á staðnum og vinna að því að losa farþega sem eru fastir í rútunni og er búið að bjarga sex farþegum.

Orsakir slyssins liggja ekki fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×