Lokasekúndurnar í lífi tveggja ungra manna sem tóku skelfilega ákvörðun Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. október 2015 10:51 "Ég vona að myndbandið hafi áhrif á ungt fólk og sýni þeim hve hrikalegar afleiðingarnar geta verið af því sem virðist smávegis fíflaskapur,“ segir móðir Michaels.
Síðustu sekúndurnar í lífi tveggja ungra manna sem létu lífið í hörðum árekstri voru teknar upp á myndband. Fjölskyldur mannanna hafa gefið leyfi fyrir því að myndbandið verði birt til áminningar og í von um að koma í veg fyrir að fleiri láti lífið af sömu völdum. „Ég vona að myndbandið hafi áhrif á ungt fólk og sýni þeim hve hrikalegar afleiðingarnar geta verið af því sem virðist smávegis fíflaskapur,“ segir önnur móðirin. Vinirnir Kyle Careford og Michael Owen, 20 og 21 árs gamlir, létust samstundis þegar rauð Renault Clio bifreið hafnaði á kirkjuvegg í Sussex á Englandi að morgni sunnudagsins 12. apríl síðastliðinn. Michael tók bílferðina upp á snjallsíma sinn en þeir voru á 145 kílómetra hraða á klukkustund.Undir áhrifum og án bílprófs Farsími Michael fannst undir tré nærri þeim stað þar sem bíllinn hafnaði á veggnum. Var síminn í nógu góðu ástandi til að myndbandið varðveittist. Það upplýsti að félagarnir höfðu neytt mikils magns uppáskrifaðra og ólöglegra lyfja sem eðli málsins samkvæmt gerði það að verkum að Kyle var í engu ástandi til að aka bílnum umræddan morgun. Þá var hann sömuleiðis reynslulaus ökumaður, án bílprófs og ekki tryggður til að aka bílnum sem var í eigu Michaels. Í myndbandinu spjalla þeir félagarnir, hlæja og syngja en svo virðist sem Michael sé bókstaflega vera með Kyle í ökukennslu. Hámarkshraði í bænum er 50 km/klst en vinirnir voru sem fyrr segir á um 145 km/klst hraða. Ungu mennirnir voru báðir í bílbeltum en létust engu að síður samstundis. „Við ölum upp börn okkar og reynum að kenna þeim muninn á réttu og röngu. Við leiðbeinum, gefum þeim ráð í þeirri von að þau hlusti. En þegar þau verða fullorðinn verðum við bara að vona að þau taki réttar ákvarðanir,“ sagði Kat, móðir Michael, eftir að myndbandið var birt.Drengirnir ábyrgir „Ég hef ekki hugmynd um hvers vegna drengirnir gerðu þetta en þeir eru ábyrgir fyrir ákvörðunum sínum þessa nótt.“ Kat segir að birtingu myndbandsins megi réttlæta með þeirri von um að það komi í veg fyrir að aðrir geri sömu mistök.Myndbandið má sjá hér að neðan en það er ekki fyrir viðkvæma. Á þriðja milljón manns hafa horft á myndbandið á rúmum sólarhring.
Mest lesið „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Innlent Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Innlent Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Innlent Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Innlent Fleiri fréttir Sprengjudróni hæfði heimili Netanjahús Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Sjá meira