Freyr: Allir leikmennirnir eiga meira inni Kristinn Páll Teitsson á Laugardalsvelli skrifar 17. september 2015 20:37 vísir/pjetur „
Á köflum var ég ánægður í kvöld en það komu slæmir kaflar inn á milli,“ sagði Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, við Vísi eftir 4-1 sigur liðsins á Slóvakíu í vináttuleik á Laugardalsvelli í kvöld. Íslenska liðið byrjaði leikinn mjög vel í fyrri og seinni hálfleik og skoraði snemma en inn á milli komu langir slæmir kaflar þar sem liðið var ekki að spila vel. „Ég hefði viljað fylgja fyrsta markinu betur eftir. Fyrstu 20 mínúturnar í fyrri hálfleik voru fínar en seinni 25 ekkert sérstakar,“ sagði Freyr, en hvað veldur? „Það var bæði ryð og annað. Við náðum ekki að halda boltanum nógu vel en við fórum fínar leiðir. Það vantaði bara meira frumkvæði og hugrekki. Ég hef samt engar áhyggjur af þessu. Þetta verður allt í toppstandi á þriðjudaginn.“ Hann var ánægður með karakterinn í liðinu að skora strax eftir að fá á sig mark í stöðunni 2-0. „Það vantar ekkert upp á karakterinn í þessum hópi. Þetta voru góð mörk og það var sterkt að skora eftir að fá á sig mark og klár þetta. Þetta var flott frammistaða, en allir leikmennirnir eiga örlítið meira inni,“ sagði Freyr. Hvað var það jákvæða í leiknum að mati þjálfarans? „Fjögur mörk og nokkuð gott uppspil á köflum. Líka það að nú erum við búin að spila fyrsta leikinn saman og ættum að vera betur undirbúin fyrir erfiðari leik gegn Hvíta-Rússlandi á þriðjudaginn,“ sagði Freyr Alexandersson.
Íslenski boltinn Mest lesið Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Íslenski boltinn Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn Damir á leið til Asíu Íslenski boltinn Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Fótbolti Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Enski boltinn „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Körfubolti Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Enski boltinn Ísak hættur með ÍR Körfubolti Fleiri fréttir Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Pogba við það að rifta samningi sínum við Juventus Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að kýla dómara Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Hlín og Guðrún báðar tilnefndar: „Það er engin eins og hún“ Sjá meira