Erlent

Frans páfi lýkur Asíuheimsókn sinni

Sex milljónir manna hlýddu á messu páfa.
Sex milljónir manna hlýddu á messu páfa. Vísir7AFP
Frans páfi hefur snúið aftur til Rómar eftir vel heppnaða heimsókn til Filippseyja þar sem hann sló meðal annars met þegar sex milljónir manna voru viðstaddar messu sem hann stjórnaði utandyra í höfuðborginni Manila í gær.

Aldrei hafa svo margir hlýtt á orð páfa en fyrra metið, fimm milljónir, var einnig sett á Filippseyjum en þar eru áttatíu milljónir kaþólikka. Og í morgun þegar páfi lagði leið sína út á flugvöll hópaðist fólk að honum og tugþúsundir manna stóðu við vegina á leið hans til að freista þess að líta hann augum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×