Ísland í dag: Dularfullt bréf á Grænlandi skrifað á hlaupum frá nasistum Bjarki Ármannsson skrifar 3. nóvember 2015 20:05
Dularfullt bréf sem Friðrika Hjördís Geirsdóttir, eða Rikka eins og hún er oft kölluð, sjónvarpskona á Stöð 2, fann í grennd við afskekkt þorp á Grænlandi var skrifað árið 1942 af ævintýragjörnum Dana sem var á hlaupum frá hermönnum nasista. Bréfið fannst í gömlu sígarettuboxi undir steinahrúgu og er nú á leið á Þjóðminjasafnið á Grænlandi.Rikka sagði stórmerkilega sögu bréfsins í Íslandi í dag og má sjá innleggið í spilaranum hér að ofan.Bréfið fannst í ryðguðu sígarettuboxi Rikka rakst á bréfið nú í sumar þegar hún var á siglingu með rafknúnu skonnortunni Opal um Scoresbysund á Austur-Grænlandi. „Þetta var vikuferð sem hófst við þorpið Ittoqqortoormiit sem er talið eitt afskekktasta þorp í heiminum,“ segir Rikka í samtali við Vísi. „Þar búa um fimm hundruð manns og tvö hundruð hundar. Til þess að átta sig á fjarlægðum frá nágrannaþorpum þá er Bolungarvík í um fimm hundruð kílómetra fjarlægð og Tasilaq á Grænlandi átta hundruð kílómetrum sunnar á Grænlandi.“ Í eitt skipti sem hópurinn fór í land segist Rikka hafa farið aðra leið en hinir og upp á hæð nokkra þar sem hún rakst á steinahrúgu nokkra. Eftir að hafa rótað í henni fann hún gamalt og ryðgað sígarettubox og í því bréf sem maður að nafni Ib Poulsen hafði skrifað undir. „Á þessari stundu áttaði ég mig ekki á mikilvægi fundarins því á þessu svæði er hvorki net- né símasamband,“ segir Rikka. „Eftir að ég kom heim þá fóru hjólin að snúast og ég fékk sífellt fleiri upplýsingar um það hver maðurinn hefði verið í raun og veru. Ég setti mig í samband við Þjóðminjasafn Danmerkur sem hjálpaði mér að fylla í eyðurnar og koma mér í samband við aðila hjá Þjóðminjasafninu í Grænlandi en þangað fer bréfið að sjálfsögðu.“Frá Nuuk á Grænlandi.Vísir/Óskar Páll FriðrikssonDulkóðaði veðurupplýsingar og flúði hermenn Þjóðverja Ib Poulsen var ævintýragjarn Dani sem sinnti mikilvægu hlutverki í seinni heimsstyrjöldinni. „Hann átti að taka við bókaverslun föður sín en sótti þess í stað um stöðu á veðurathugunarstöð á Austur Grænlandi,“ útskýrir Rikka. „Hann vann þar veturlangt og kunni það vel við sig að hann hugðist snúa til baka eftir sumarfrí. Hann fór til Danmerkur í fríinu en um þær mundir réðust Þjóðverjar inn í Danmörku og landinu var lokað. Ib sótti um að fá að snúa aftur til starfa á veðurathugunarstöðinni og fékk leyfi til þess frá Þjóðverjunum. Þess verður að geta að veðurathugunarstöðvar á þessum tíma sendu frá sér mikilvægar upplýsingar. Með því að vita hvernig veðrið er í Grænlandi í dag er hægt að spá fyrir hvernig það verður í Evrópu á morgun og það voru mikilvægar upplýsingar í stríði upp á flug og siglingar að gera. Til að mynda var mikið stuðst við upplýsingar frá þessari veðurathugunarstöð við innrásina í Normandy sem sló lokahöggið á heimstyrjöldina.“ Við komu Ib til Grænlands ákvað hann í samstarfi við þáverandi landstjóra, Eske Brun, að dulkoða veðurlýsingar þannig að einungis Bretar og Bandaríkjamenn skildu. Þar sem landstjóranum þótti líklegt að Þjóðverjar kæmu til að setja upp aðra veðurathugunarstöð, og í leiðinni eyðileggja þá sem fyrir, var stofnaði hann fyrsta grænlenska herinn og var Ib Poulsen settur hershöfðingi. „Hans hlutverk var ásamt sínum mönnum að fylgjast með því hvort Þjóðverjarnir lætu á sér kræla,“ segir Rikka. „Það kom svo upp að þeir mættu á svæðið og í stuttu máli brenndu þeir niður veðurathugunarstöð Ibs og tóku nokkra menn til fanga. Ib komst undan og á flóttanum frá Þjóðverjunum skrifaði hann þetta bréf í þeirri von um að vinir hans finndu það og vissu að það væri í lagi með hann.“ Ib komst undan Þjóðverjunum og í lok stríðsins voru hann sóttur og farið með hann heim. Hann ílengdist í Grænlandi enda búinn að taka ástfóstri við landið. Að lokum snéri hann þó heim til Danmerkur og gerðist lögreglumaður. Hann lést gamall maður og gat af sér fjögur börn.
Ísland í dag Mest lesið Fólkið sem sé ekki á Kjarval velti þessu sannarlega fyrir sér Innlent Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Erlent Lögreglumaður dæmdur fyrir að beita kylfu við handtöku Innlent Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Innlent Eftirlitsfólk MAST geti ekki fylgst með hverri einustu blóðtöku Innlent Umfangsmikil uppbygging við andapollinn sé „stórlega ýkt“ Innlent Fordæma „hverskyns ofbeldi“ og segjast hugsi yfir njósnum um bændur Innlent Hellisheiði lokað til vesturs og fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng í alla nótt Innlent Máttu ekki vísa mæðgunum úr félaginu í fimmtán ár Innlent Pétur Jökull fékk átta ára dóm í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Eftirlitsfólk MAST geti ekki fylgst með hverri einustu blóðtöku Fólkið sem sé ekki á Kjarval velti þessu sannarlega fyrir sér Lögreglumaður dæmdur fyrir að beita kylfu við handtöku Esjustofa í endurnýjun lífdaga Umfangsmikil uppbygging við andapollinn sé „stórlega ýkt“ Máttu ekki vísa mæðgunum úr félaginu í fimmtán ár Hellisheiði lokað til vesturs og fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng í alla nótt Bandaríkin muni semja Fordæma „hverskyns ofbeldi“ og segjast hugsi yfir njósnum um bændur Ólíklegt að hættustigið verði lækkað á komandi árum Hryðjuverkaógn, setustofa á Esjunni og milljarðar í húfi Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Sauð á starfsmanni sem löðrungaði íbúa á hjúkrunarheimili Fleiri en ein hópnauðgun til rannsóknar Kynnir áform um að leggja niður stjórn Sjúkratrygginga Pétur Jökull fékk átta ára dóm í Landsrétti Jómfrúarræða um Súðavíkurhlíð og skömmu síðar lenti sonur hans þar í slysi Þakgarðar og bílalyfta í stað bensínstöðvar Loftleiðir stofnuðu Cargolux til að nýta verðlitlar flugvélar Birtir niðrandi ummæli sem lýsi hatri í garð trans fólks Veiðigjöldin verði keyrð í gegn Óvíst hvort að tvöföldun rýma muni nægja Ákvað fyrir löngu að fara með ræðuna á íslensku Kveiktu á tónlist til að yfirgnæfa hávaða í mótmælendum Markaðir kættust eftir að Trump frestaði ofurtollum Bein útsending: Geðheilbrigði fyrir öll Pallborðið: Er „woke-ismi“ pólitískur rétttrúnaður? Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Sjá meira