Körfuboltakona kafnaði á tyggjói í svefni Atli Ísleifsson skrifar 21. janúar 2015 13:14 Chanice Clark spilaði körfubolta með háskólaliði California University of Pennsylvania. Mynd/CalVulcans
Háskólanemi í Pennsylvaníu sem fannst meðvitundarlaus í íbúð sinni á sunnudagskvöldinu er talin hafa kafnað á tyggjói í svefni. Hin 21 ára Shanice Clark lést á sjúkrahúsi skömmu síðar. Clark stundaði nám við háskólann California University of Pennsylvania (Cal U) og hafði hlotið körfuboltastyrk frá skólanum. Í frétt BBC kemur fram að læknar segi bráðabirgðaniðurstöður benda til þess að Clark hafi kyngt tyggjóinu í svefni og í kjölfarið kafnað. Geraldine Jones, forseti skólans, segist í yfirlýsingu votta fjölskyldu og vinum Clark samúð sína. „Þjálfarar og samherjar, samnemendur og allir á háskólasvæðinu munu sakna hennar.“ Cleveland Clunis, fyrrverandi þjálfari Clark, segist í samtali við CTV Toronto hafa fengið símtal frá móður hennar sem hafi greint frá andláti Clark. „Hún hringdi og var grátandi. Ég trúði henna ekki. Það var svo erfitt að trúa þessu. Ég hafði á tilfinningunni að hún gæti haldið áfram eftir að hún myndi klára háskólann, kannski spila áfram erlendis eða eitthvað svoleiðis.“
Mest lesið Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent „Það þarf að nýta auðlindir landsins, það er alveg ljóst“ Innlent Hefur sett saman um 100 módelbíla í Hveragerði Innlent Vandræðalegur starfsmaður rak Björn Leví burt frá vínbúðinni Innlent Dæmi um að menntaðir kennarar nái ekki endum saman Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Helgi hættur á Heimildinni Innlent Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Erlent Fleiri þvottavélar en pólitíkusar á skjánum vikuna fyrir kosningar Innlent Óvænt og taktískt útspil Sigurðar Inga Innlent Fleiri fréttir Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Sjá meira