Erlent

Stakk níu í Tel Aviv

Vísir/AP
Lögreglumenn í Tel Aviv, höfuðborg Ísraels, skutu í morgun árásarmann sem hafði lagt til fólks með eggvopni í strætisvagni í borginni. Maðurinn náði að stinga níu manns, bæði inni í vagninum og fyrir utan hann. Þrír hinna særðu eru sagðir í alvarlegu ástandi.

Árásarmaðurinn, sem er sagður vera Palestínumaður, reyndi síðan að flýja vettvang glæpsins en var skotinn í fótlegg af lögreglumanni og er hann nú í haldi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×