Erlent

Frans páfi heimsækir Filippseyjar

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Filippseyski kardinálinn Luis Antonio Tagle kennir Frans páfa að gera merki sem táknar "Ég elska þig“ þar í landi.
Filippseyski kardinálinn Luis Antonio Tagle kennir Frans páfa að gera merki sem táknar "Ég elska þig“ þar í landi. vísir/AP
Frans páfi er um þessar mundir í fimm daga heimsókn á Filippseyjum. Páfinn kom í gær til Maníla, höfuðborgar landsins, og biðu hundruð þúsunda á götum úti til að berja trúarleiðtogann augum.

Íbúar landsins eru um hundrað milljónir en fjórir af hverjum fimm eru kaþólikkar. Landið hefur orðið illa úti á undanförnum árum í fellibyljum og mun páfinn heimsækja hamfarasvæðin á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×