Sport

Æfir eins og Rocky Balboa

Watt er nánast á stærð við fjall.
Watt er nánast á stærð við fjall. vísir/getty
Besti varnarmaður NFL-deildarinnar, J.J. Watt, leikmaður Houston, er þegar byrjaður að æfa fyrir næsta tímabil þó svo tímabilinu hafi lokið í nótt.

Flestir leikmenn eru í fríi næstu vikur en Watt, sem átti ótrúlegt tímabil, slær ekki slöku við.

Hann heldur til í litlum kofa í Wisconsin fjarri öllum mannabyggðum. Þar er hann að styrkja sig.

Rocky gerði slíkt hið sama í Rocky IV er hann æfði fyrir bardagann gegn Ivan Drago. Þá fékk hann kofa í Síberíu þar sem hljóp í snjónum og felldi tré með berum höndum.

„Þetta er pínulítill kofi. Eina sem ég þarf að hugsa um er að æfa mig og svona vil ég hafa þetta. Það er ekkert sem truflar mig þarna. Það er enginn maður nálægt. Bara kofinn og snjór," sagði Watt.

Watt fékk öll atkvæðin í vali á besta varnarmanni NFL-deildarinnar og varð í öðru sæti í kjörinu á besta leikmanni deildarinnar.

Hér að neðan má sjá Rocky æfa sig í Rocky IV. Spurning hvort Watt sé eins öflugur að sippa.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×