Stokkhólmsmaraþonið: Ekkert verðlaunafé til hlaupara ekki frá Norðurlöndum Atli Ísleifsson skrifar 22. apríl 2015 14:52 Keníumaðurinn Benjamin Bitok sigraði Stokkhólmsmaraþonið á síðasta ári. Vísir/AFP
Skipuleggjendur Stokkhólmsmaraþonsins hafa tekið ákvörðun um að framvegis verði einungis hlaupurum frá Norðurlöndum veitt verðlaunafé í hlaupinu. Ákvörðunin hefur verið harðlega gagnrýnd. Rizak Dirshe, margfaldur Svíþjóðarmestari í langhlaupum, segir í samtali við Expressen að ákvörðun taki lífið úr maraþoninu og norski íþróttapistlahöfundurinn Andreas Selliaas segir hana komast eins nærri rasisma og hugsast getur. Afrískir hlauparar frá löndum eins og Keníu og Eþíópíu hafa verið áberandi í efstu sætum hlaupsins síðustu ár og segja skipuleggjendur hlaupsins hafa tekið ákvörðunina til að hvetja norræna hlaupara. Svíinn Anders Szalkai var síðasti Norðurlandabúinn til að sigra Stokkhólmsmaraþonið í karlaflokki árið 2001. Að sögn geta einungis hlauparar frá Norðlöndunum nú unnið verðlaunaféð ef þeir sigra hlaupið eða þá eru fyrsti Norðurlandabúinn sem klárar hlaupið, þó eigi síðar en tíu mínútum á eftir fyrsta manni frá landi utan Norðurlanda. Verðlaunapotturinn hljóðar upp á jafnvirði alls fjórar milljóna króna. Dirshe segir ákvörðunina fáránlega. „Norrænir strákar og stelpur sem vilja hlaupa hratt, hvernig eiga þau að fara að því? Það verður að vera einhver samkeppni.“ Hann telur ekki að nokkur erlend hlaupastjarna komi þar sem þeir hafi að engu að keppa, nema þá heiðurinn. Lorenzo Nesi, fjölmiðlafulltrúi hlaupsins, gagnrýnir ákvörðunina harðlega í samtali við Expressen. „Ef ég væri Keníumaður þá myndi ég ekki fara til Stokkhólms. Það væri algerlega tilgangslaust.“ Stokkhólmsmaraþonið verður haldið í 37. skipti laugardaginn 30. maí næstkomandi.
Mest lesið Sunnudagurinn í Valhöll gæti orðið úrslitastund fyrir Þórdísi Innlent Sendur í leyfi eftir umfjöllun Kveiks Innlent „Þetta mál er lögregluembættinu til ævarandi skammar“ Innlent Aldursforsetinn hvergi af baki dottinn Innlent Ráðist á starfsfólk hótels Innlent Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði Viðskipti innlent Kjarasamningar opinberra starfsmanna megi ekki raska kjarasátt Innlent Þórunn og Guðmundur Árni munu bítast um oddvitasætið Innlent Hundrað ára Carter búinn að kjósa Erlent „Ég er viss um að hann mundi allt sem gerðist þetta kvöld“ Innlent Fleiri fréttir Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Harris situr fyrir svörum hjá Fox News á morgun Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Leggur til að beita hernum gegn andstæðingum sínum Leggur upp í leit að lífvænlegum aðstæðum á Evrópu Verðlaunaðir fyrir rannsóknir á áhrifum stofnana á auðlegð þjóða Nota óbreytta Palestínumenn til að leita að sprengjum og gildrum Ekki grunaður um að hafa ætlað að drepa Trump Vilja endurreist æru þeirra sem neituðu að berjast Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð „Þriðja banatilræðinu“ gegn Trump afstýrt Gripu eldflaugarþrep á stærð við Hallgrímskirkju með vélarmi Vill friðargæsluliðið út úr Suður-Líbanon strax Óútskýrður dauði ungrar blaðakonu í haldi Rússa Segja átta manna fjölskyldu hafa fallið í loftárás Ísraela Hundrað og fjögur ríki lýsa yfir stuðningi við Guterres Sjá meira