Biðst afsökunar á að hafa togað í tagl þjónustustúlku Atli Ísleifsson skrifar 22. apríl 2015 09:44 John Key hefur gegnt embætti forsætisráðherra Nýja-Sjálands frá árinu 2008. Vísir/Getty/AFP
John Key, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, hefur beðið afgreiðslukonu á kaffihúsi í Auckland afsökunar fyrir að hafa ítrekað togað í tagl hennar. Þjónustustúlkan greinir frá málinu í bloggfærslu þar sem hún segir Key nokkrum sinnum hafa togað í taglið, jafnvel eftir að hún bað hann um að hætta því. Talsmaður forsætisráðuneytisins segir ráðherrann hafa beðið þjónustustúlkuna afsökunar. Hann hafi greint henni frá því að hann hafi ekki ætlað að láta henni líða illa. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í landinu hafa margir gagnrýnt Key vegna málsins. Þjónustustúlkan segir í færslu sinni að tártogið hafi byrjað í kosningabaráttunni í nóvember síðastliðinn. Hún segist hafa reynt að forðast Key þegar hann kom inn á kaffihúsið og sagt öryggisvörðum ráðherrans að henni væri ekki vel við að ráðherrann togaði í hár hennar. Í síðasta mánuði bað hún loks Key persónulega að hætta hártoginu en hann hélt því áfram. Hann baðst síðar afsökunar og gaf henni tvær vínflöskur að gjöf. Nýsjálendingar hafa margir tjáð sig um málið á Twitter með kassamerkinu #tailgate og #ponytailgate.#tailgate Tweets
Mest lesið Sunnudagurinn í Valhöll gæti orðið úrslitastund fyrir Þórdísi Innlent Sendur í leyfi eftir umfjöllun Kveiks Innlent „Þetta mál er lögregluembættinu til ævarandi skammar“ Innlent Aldursforsetinn hvergi af baki dottinn Innlent Ráðist á starfsfólk hótels Innlent Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði Viðskipti innlent Kjarasamningar opinberra starfsmanna megi ekki raska kjarasátt Innlent Þórunn og Guðmundur Árni munu bítast um oddvitasætið Innlent Hundrað ára Carter búinn að kjósa Erlent „Ég er viss um að hann mundi allt sem gerðist þetta kvöld“ Innlent Fleiri fréttir Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Harris situr fyrir svörum hjá Fox News á morgun Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Leggur til að beita hernum gegn andstæðingum sínum Leggur upp í leit að lífvænlegum aðstæðum á Evrópu Verðlaunaðir fyrir rannsóknir á áhrifum stofnana á auðlegð þjóða Nota óbreytta Palestínumenn til að leita að sprengjum og gildrum Ekki grunaður um að hafa ætlað að drepa Trump Vilja endurreist æru þeirra sem neituðu að berjast Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð „Þriðja banatilræðinu“ gegn Trump afstýrt Gripu eldflaugarþrep á stærð við Hallgrímskirkju með vélarmi Vill friðargæsluliðið út úr Suður-Líbanon strax Óútskýrður dauði ungrar blaðakonu í haldi Rússa Segja átta manna fjölskyldu hafa fallið í loftárás Ísraela Hundrað og fjögur ríki lýsa yfir stuðningi við Guterres Sjá meira