Erlent

Úkraínuher hörfar frá Donetsk-flugvelli

Atli Ísleifsson skrifar
Uppreisnarmenn náðu nokkrum úkraínskum hermönnum og gengu með þá um borgina þar sem fjölmargir köstuðu hlutum af götunni í átt að þeim.
Uppreisnarmenn náðu nokkrum úkraínskum hermönnum og gengu með þá um borgina þar sem fjölmargir köstuðu hlutum af götunni í átt að þeim. Vísir/AFP
Talsmenn Úkraínustjórnar hafa staðfest að sveitir stjórnarhersins hafi hörfað frá flugvellinum í borginni Donetsk. Mikil átök hafa staðið yfir milli stjórnarhersins og aðskilnaðarsinna á bandi Rússlandsstjórnar síðustu daga.

Talsmaðurinn sagði herinn hafa náð stjórn á ákveðnum svæðum flugvallarins en að sex hermenn hafi látist og sextán særst í átökunum. ´

Í miðborg Donetsk létust þrettán manns eftir að skotið var á strætisvagn. Uppreisnarmenn náðu þar nokkrum úkraínskum hermönnum og gengu með þá um borgina þar sem fjölmargir köstuðu hlutum af götunni í átt að þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×