Erlent

Segir Bandaríkjamenn í stríði við þá sem afskræmi íslam

Vísir/EPA
Barack Obama Bandaríkjaforseti segir að þjóð hans sé ekki í stríði við Íslamstrú, heldur séu Bandaríkjamenn í stríði við þá sem afskræma Íslam. Þetta kom fram í ræðu forsetans í gærkvöldi en hann er nú viðstaddur ráðstefnu þar sem saman kemur fólk frá um sextíu löndum og ræða öfgatrú.

Forsetinn bætti því við að mikilvægt sé að átta sig á því að leiðtogar samtaka á borð við ÍSIS og Al Kaída séu ekki trúarleiðtogar, heldur einfaldlega hryðjuverkamenn.

Bandaríkjamenn hafa undanfarið gert loftárásir á búðir Ísis manna í Írak og nú hefur forsetinn einnig farið fram á það við þingið að hermætti ríkisins verði einnig beitt á jörðu niðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×