Erlent

Eldri maður fékk loks að klessa á bílskúrshurðina sína

Atli Ísleifsson skrifar
Walter Thomas er níræður að aldri.
Walter Thomas er níræður að aldri. Vísir/AP
Eldri maður í úthverfi Chicago fékk nýlega gamla ósk sína uppfyllta þegar hann ók bíl sínum út um bílskúrinn með því að bakka honum í gegnum bílskúrshurðina.

Í frétt AP segir að til hafi staðið að skipta um hurð í bílskúrnum og hafi fjölskylda Walters aðstoðað hann við að láta ósk hans rætast.

Walter segist ánægður með reynsluna og kveðst óviss um hvað hann gæti gert til að toppa hana.

Sjá má myndband af atvikinu og viðtal við Walter í spilaranum að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×