Erlent

Hýddur fyrir meint guðlast

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Raif Badawi.
Raif Badawi. Vísir/EPA
Hæstiréttur Sádi-Arabíu hefur staðfest refsingu yfir bloggaranum Raif Badawi sem dæmdur var á neðra dómstigi til að þola þúsund svipuhögg og sæta tíu ára fangelsi fyrir að hæðast að íslam í bloggfærslum sínum.

Ensaf Haidar, eiginkona Badawis, segir í samtali við BBC að ákvörðunin sé endanleg. Árið 2012 var Badawi handtekinn og ákærður fyrir að halda úti heimasíðu sem hvatti fólk til umræðu um trúmál og pólitísk málefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×