Vilja að fastaríki öryggisráðsins afsali sér neitunarvaldi Atli Ísleifsson skrifar 25. febrúar 2015 08:54 Salil Shetty er framkvæmdastjóri Amnesty International. Vísir/AFP
Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa hvatt ríkin fimm sem eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til að afsala sér neitunarvaldi sínu í þeim málum þar sem ráðið tekur fyrir mál þar sem stórfelld grimmdarverk hafa verið framin. Samtökin hafa nú birt ársskýrslu sína þar sem fram kemur að viðbrögð alþjóðasamfélagsins við hamförum og styrjöldum á árinu 2014 hafi verið skammarleg. Afstaða auðugra ríkja hafi verið „andstyggileg“ þar sem þau hafi ekki tekið við fleiri flóttamönnum en raun bar vitni.Í frétt BBC kemur fram að samtökin telji horfur fyrir árið 2015 ekki vera góðar. Að dómi samtakanna hafi árið 2014 verið skelfilegt ár fyrir fórnarlömb átaka og ofbeldis. Leiðtogar heims þurfi umsvifalaust að bregðast við til að geta tekist á við breytt eðli vopnaðra átaka í heiminum. Salil Shetty, framkvæmdastjóri Amnesty, segir í yfirlýsingu að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi herfilega mistekist að vernda öryggi óbreyttra borgara. Þess í stað hafi fastaríkin fimm – Bandaríkin, Kína, Rússland, Bretland og Frakkland – beitt neitunarvaldi sínu til að tryggja eiginhagsmuni sína eða landfræðipólitíska hagsmuni, í stað þess að tryggja öryggi óbreyttra borgara. Samtökin telja að hluti lausnarinnar væri að fastaríkin myndu afsala sér neitunarvaldi sínu í málum sem tengjast fjöldamorðum og þjóðarmorðum. Færa samtökin rök fyrir því að ef slíkt fyrirkomulag væri nú þegar í gildi hefði það til að mynda komið í veg fyrir að Rússland myndi ítrekað beita neitunarvaldi sínu til að koma í veg fyrir aðgerðir af hálfu Sameinuðu þjóðanna í málefnum Sýrlands.
Mest lesið Sagðir hafa fundið um 1.500 skilaboð milli Þorsteins og Jóhannesar Innlent Fá að leita í innrituðum farangri farþega að þeim fjarstöddum Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Erlent Vandræðalegur starfsmaður rak Björn Leví burt frá vínbúðinni Innlent Ný könnun: Ómarktækur munur á Viðreisn og Sjálfstæðisflokknum Innlent „Nauðsynlegt að bregðast við“ en aðgerðum fækkar Innlent Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Erlent Ítrekuð brot gegn grunnskólastúlku nauðgun eftir allt saman Innlent „Fólk hefur verið að ýta við mér“ Innlent Fleiri fréttir Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Harris situr fyrir svörum hjá Fox News á morgun Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Sjá meira