Erlent

Öflug sprenging í Belgíu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Framhlið hússins er gjörónýt
Framhlið hússins er gjörónýt twitter
Mikil sprenging í íbúðarhúsi skók belgísku borgina Verviers núna seinni partinn.

Sprengingin var svo öflug að framhlið hússins er gjörónýt, eins og myndin hér til hliðar ber með sér.

Ekki er vitað hvað olli sprengingunni á þessari stundu en fyrstu fregnir herma að um gassprengingu hafi verið að ræða. Þá er að sama skapi talið að um fimm hafi særst í sprengingunni.

Slökkviliðsmenn eru nú á vettvangi og rannsaka slysstaðinn. Íbúum nærliggjandi húsa hefur verið gert að yfirgefa heimili sín.

Mikil ringulreið greip um sig í borginni enda heyrðist sprengingin víða.

Fréttin verður uppfærð eftir því sem frekari fregnir berast.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×