Rússar skutu á tyrkneskan togara Stefán Ó. Jónsson skrifar 13. desember 2015 14:10 Smetliviy við höfn í Sevastopol á Krímskaga. Vísir/AFP
Rússneskt herskip skaut viðvörunarskoti í átt að tyrknesku fiskveiðiskipi í Eyjahafi í dag. Að sögn stjórnvalda í Moskvu var það gert til að koma í veg fyrir að skipin skyllu saman. Fjölmiðlar ytra greina frá þessu og eru þeir á einu máli um að þetta muni koma til með að gera samskipi Rússa og Tyrkja enn stirðari. Sjá einnig: Segir flugritann leiða sannleikann í ljós Ríkin hafa deilt hart undanfarið allt frá því að tyrkneski flugherinn skaut niður rússneska orrustuþotu yfir Sýrlandi í nóvember. Í yfirlýsingu frá rússneska varnarmálaráðuneytinu segir að eftirlitsskipið Smetliviy hafi ítrekað sent sjónrænar viðvaranir til tyrkneska skipsins. Þá hafi Rússar reynt að ná talstöðvarsambandi við skipið þegar það var í um kílómetra fjarlægð en án árangurs. Þegar engin skilaboð höfðu borist frá skipinu og það var komið í um 600 metra fjarlægð hafi rússneska skipið skotið í átt að því svo að það breytti um stefnu. Sendinefnd tyrkneska hersins í Moskvu var kölluð saman vegna málsins. Það hefur blásið köldu á milli Rússa og Tyrkja allt frá því að hinni rússnesku SU-24 orrustuþotu var grandað þann 24. nóvember síðastliðinn. Tyrknesk stjórnvöld hafa haldið því statt og stöðugt fram að vélin hafi flogið inn í lofthelgi landsins þegar flugherinn ákvað að granda henni. Þessu hafa ráðamenn í Moskvu vísað á bug og segja vélina hafa verið yfir Sýrlandi þegar hún var skotin niður.Sjá einnig: Rússar líta árásina mjög alvarlegum augum Grand vélarinnar er litið mjög alvarlegum augum í Rússlandi og hefur Vladimir Pútín forseti landsins sagt það vera sem hnífstungu í bak þjóðar sinnar.
Tengdar fréttir Pútín skipar herliði sínu að sýna aukna hörku í Sýrlandi Rússlandsforseti hefur skipað herjum sínum að granda hverju því sem ógni herliði Rússa í Sýrlandi. 11. desember 2015 11:26 Mest lesið Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Innlent Engu um að kenna nema „handónýtu kerfi“ Innlent Verður kominn í rafrænt eftirlit þremur árum eftir manndrápið Innlent „Ekki næstum því allir íbúar með þetta app“ Innlent Kennarar greiða atkvæði um verkfall Innlent Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni Innlent Varaþingmaður Miðflokksins vill skoða að stofna íslenskt varnarlið Innlent Banaslysið aftur til héraðssaksóknara Innlent Drottningin baðst afsökunar á því að geta ekki boðið betra veður Innlent Skorti langtímarannsóknir á áhrifum Ozempic og Wegovy Innlent Fleiri fréttir Segja hermenn Kim líklega á leið til aðstoðar Rússa Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Lögregla upplýsir ekki um notkun andlitsgreiningarhugbúnaðar Koma sér í skjól undan fellibylnum Milton Sjúkrahús í Kaliforníu ákært fyrir að neita óléttri konu um neyðaraðstoð Hlutu Nóbelinn fyrir framlag til vélræns náms Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Grunaði í máli Madeleine McCann sýknaður af öðrum brotum Svaraði spurningum um Netanyahu, Pútín og reynslu af skotvopnum „Þú hugsar bara: Hver var skotinn?” Ekkert lát á aðgerðum Ísraelshers gegn Hamas og Hezbollah „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Sjá meira
Pútín skipar herliði sínu að sýna aukna hörku í Sýrlandi Rússlandsforseti hefur skipað herjum sínum að granda hverju því sem ógni herliði Rússa í Sýrlandi. 11. desember 2015 11:26