Erlent

Skutu aldraðan mann með rafbyssu - Myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Maðurinn virtist vera sammvinnuþýður þegar lögreglumenn skutu hann með rafbyssu.
Maðurinn virtist vera sammvinnuþýður þegar lögreglumenn skutu hann með rafbyssu.
Myndband náðist af því þegar lögreglumenn í Flórída í Bandaríkjunum skutu aldraðan mann með rafbyssu til að yfirbuga hann. Maðurinn var með hendurnar á lofti þegar hann var skotinn. Málið er nú til rannsóknar hjá yfirvöldum.

Á myndbandinu má sjá tvo lögreglumenn draga manninn úr bíl sínum, þar sem honum er lagt á bílastæði. Ástæða þess að lögreglumenn voru á eftir honum liggur hins vegar ekki fyrir.

Á vef Miami New Times segir að lögreglan hafi ekki viljað gefa upp aðrar upplýsingar en að málið væri í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×