Fjöldi látinn eftir skotárás í Sviss Aðalsteinn Kjartansson skrifar 10. maí 2015 09:08 Lögreglan hefur ekki viljað gefa upp hversu margir létust í skotárásinni en byssumaðurinn sagður meðal hinna látnu. Mynd úr safni. Vísir/AFP
Ótilgreindur fjöldi fólks er látinn eftir skotárás í Würenlingen í Sviss. Lögreglan þar í landi segir að byssumaður hafi hafið skothríð í íbúðahverfi í bænum. Allir hinna látnu eru fullorðnir. Reuters greinir frá þessu og vitnar í yfirlýsingu frá lögreglunni í Sviss. Maðurinn sem grunaður er um athæfið er meðal hinna látnu, segir talsmaður lögreglunnar. Íbúar í hverfinu kölluðu til lögreglu eftir að hafa heyrt skothvelli í kringum 11 í gærkvöldi. Lögreglumenn sem komu á staðinn fundi nokkra látna, bæði utan- og innandyra í húsinu þar sem árásin átti sér stað.Bærinn Würenlingen er í norðurhluta Sviss.Switzerland,killed several people in Wuerenlingen...http://t.co/A581YiUTIZ http://t.co/n5es1qffPT pic.twitter.com/odX5KZCdG6— Natalia (@NataliaBini2) May 10, 2015 Hluti fórnarlambanna hið minnsta þekkti árásarmanninn, að sögn lögreglu, að því er BBC greinir frá. Talsmaður lögreglunnar segir að talið sé að málið tengist fjölskyldudeilum og að ekki sé um hryðjuverk að ræða. Um 4.500 manns búa í Würenlingen sem er staðsettur norðvestur af Zürich. Samkvæmt dagblaðinu NZZ átti skotárásin sér stað í fjölskylduvænu hverfi. Lögreglan rannsakar nú málið og hefur talsmaður hennar ekki viljað gefa uppi hversu margir létust í árásinni en von er á frekari upplýsingum frá lögreglunni síðar í dag.Árásin átti sér stað í íbúahverfi.Shooting in Aargau, Switzerland, took place in a residential area in Würenlingen, police say - AargauerZeitung http://t.co/fWl9rmDNQl— SavageNation (@SavageNation) May 10, 2015
Mest lesið Sunnudagurinn í Valhöll gæti orðið úrslitastund fyrir Þórdísi Innlent Sendur í leyfi eftir umfjöllun Kveiks Innlent Aldursforsetinn hvergi af baki dottinn Innlent Þórunn og Guðmundur Árni munu bítast um oddvitasætið Innlent Hundrað ára Carter búinn að kjósa Erlent Minnihlutastjórn tekur væntanlega við völdum á morgun Innlent Oddný ætlar ekki aftur fram Innlent Uppstillingar á báðum listum í Reykjavík Innlent „Ég er viss um að hann mundi allt sem gerðist þetta kvöld“ Innlent Faðirinn hafi ætlað að skilja hann eftir á flugvellinum Innlent Fleiri fréttir Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Harris situr fyrir svörum hjá Fox News á morgun Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Leggur til að beita hernum gegn andstæðingum sínum Leggur upp í leit að lífvænlegum aðstæðum á Evrópu Verðlaunaðir fyrir rannsóknir á áhrifum stofnana á auðlegð þjóða Nota óbreytta Palestínumenn til að leita að sprengjum og gildrum Ekki grunaður um að hafa ætlað að drepa Trump Vilja endurreist æru þeirra sem neituðu að berjast Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð „Þriðja banatilræðinu“ gegn Trump afstýrt Gripu eldflaugarþrep á stærð við Hallgrímskirkju með vélarmi Vill friðargæsluliðið út úr Suður-Líbanon strax Óútskýrður dauði ungrar blaðakonu í haldi Rússa Segja átta manna fjölskyldu hafa fallið í loftárás Ísraela Hundrað og fjögur ríki lýsa yfir stuðningi við Guterres Sjá meira