Bíó og sjónvarp

Fyrirsæta vill feluhlutverk

Cara Delevingne, fyrirsæta, hefur áhuga á hlutverki í nýrri mynd.
Cara Delevingne, fyrirsæta, hefur áhuga á hlutverki í nýrri mynd.
Fyrirsætan Cara Delevingne vill leika feluhlutverk í væntanlegri Absolutely Fabulous-kvikmynd.

Hin 22 ára stjarna vonast til að feta í fótspot Kate Moss og Naomi Campell sem báðar komu fram í bresku sjónvarpsþáttunum sem myndin er gerð eftir.

Delevingne er mikill aðdáandi þáttanna, sem grínistinn Jennifer Saunders bjó til um tvær eigingjarnar miðaldra konur.

Saunders er að vinna í handriti myndarinnar, auk þess sem hún mun endurtaka hlutverk sitt sem Edina. Johana Lumley mun leika Patsy.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×