Bíó og sjónvarp

Eldri konur verða djöflar

Meryl Streep leikur í Into the Woods.
Meryl Streep leikur í Into the Woods.
Meryl Streep segir að konur séu gerðar að hálfgerðum djöflum þegar þær eldast.

Hin 65 ára leikkona segist hafa hafnað fjölmörgum hlutverkum eftir að hún komst á fimmtugsaldur þar sem hún var beðin um að leika norn.

Hún hafnaði þeim vegna þess að henni er illa við að konum sé lýst sem „hryllilegum“ vegna aldurs síns. Hún leikur einmitt norn í myndinni Into the Woods.

Streep ákvað að leika hana vegna þess að henni þótti hlutverkið hæfa aldri sínum. „Mér fannst þetta réttur tími. Það var ekki réttur tími þegar ég var fertug,“ sagði hún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×