Erlent

Vill hækka skatta á auðugasta fólkið

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Barack Obama hyggst nota stefnuræðu sína á morgun til að skora á þingið að hækka skatta á hátekju- og stóreignafólk.
Barack Obama hyggst nota stefnuræðu sína á morgun til að skora á þingið að hækka skatta á hátekju- og stóreignafólk. Vísir /AP
Með því að setja fram áskorun um skattahækkanir á hátekjufólk og auðkýfinga setur Obama repúblikana, sem eru með meirihluta í báðum þingdeildum, í þá stöðu að þurfa að verja hagsmuni hinna ríku gegn hagsmunum annarra.

Fram hefur komið að hann vilji hækka fjármagnstekjuskatt á þá sem hæstu tekjurnar hafa. Enn fremur vill hann afnema undanþágur á erfðaskatti og leggja ný gjöld á stærstu fjármálafyrirtækin. Með þessu fái ríkissjóður tekjur, sem nota megi til að fjármagna skattaafslátt og fleira sem gagnast myndi miðtekjufólki.

Embættismenn segja tekjurnar fyrir ríkissjóð geta numið 320 milljörðum dala næsta áratuginn, en það samsvarar rúmlega 42.000 milljörðum króna.

Reikna má með því að þessar hugmyndir verði þær sem einna harðast verður deilt um í bandarískum stjórnmálum á þeim tveimur árum sem eftir eru af seinna kjörtímabili Obama. Um leið setur Obama tóninn fyrir forsetakosningarnar árið 2015, þar sem arftaki hans á forsetastól verður valinn.

Repúblikanar eru þegar farnir að andmæla harðlega þessum hugmyndum, þótt ræðan sé enn óflutt: „Að slengja meiri skattahækkunum framan í bandarísk smáfyrirtæki, sparifjáreigendur og fjárfesta gerir ekkert annað en að ónýta ávinning þeirrar skattastefnu sem hefur hjálpað til við að styrkja efnahaginn, hvetja til sparnaðar og skapa ný störf,“ hafa fjölmiðlar eftir Orrin G. Hatch, formanni fjármálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings.

Ekki er búist við að Obama tilkynni neina meiriháttar stefnubreytingu í utanríkismálum, þótt almennt sé reiknað með að hann noti tækifærið til þess að fá þingið ofan af því að leggja nýjar refsiaðgerðir á Íran, nú þegar samningaviðræður við írönsk stjórnvöld um kjarnorkumál standa sem hæst. Þá er reiknað með að hann muni verja ákvörðun sína um að taka upp stjórnmálasamband við Kúbu.

Stefnuræða forseta Bandaríkjanna er jafnan flutt í janúar og hefur verið einn helsti vettvangur forsetans til að kynna áform sín þjóðinni. Undanfarin ár hefur áhorf á ræðuna þó minnkað jafnt og þétt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×