Erlent

Skotinn til bana af systur sinni

vísir/getty
Sextán ára piltur var í Flórída í Bandaríkjunum á mánudag skotinn til bana af fimmtán ára systur sinni. Stúlkan er sögð hafa brotist inn í læst svefnherbergi foreldra sinni og sótt inn til þeirra byssu og fengið ellefu ára gamla systur sína til að aðstoða sig.

Stúlkan hafði orðið fyrir miklu ofbeldi af hálfu fjölskyldumeðlima sinna nær alla hennar ævi og hafði bróðir hennar beitt hana bæði líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Þá var frændi hennar árið 2010 dæmdur fyrir að hafa misnotað hana.

AP fréttastofan hefur eftir lögregluyfirvöldum í Bandaríkjunum að foreldrar hennar hefðu reglulega læst hana inni í herbergi, jafnvel vikum saman.  Einungis eitt teppi fannst inni í herberginu við leit lögreglu og fata full af hlandi. Foreldrar hennar höfðu lengst læst hana inni í 20 daga í senn. Ellefu ára systir hennar og þriggja ára bróðir eru nú í umsjá barnaverndaryfirvalda. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×