Sádar ætla að verða stórveldi í grænum orkugjöfum Nadine Guðrún Yaghi skrifar 26. maí 2015 07:00 Ali al-Naimi olíumálaráðherra Sádi-Arabíu NORDICPHOTOS/AFP
Sádi-Arabía, stærsti olíuútflytjandi heims, stefnir á að verða stórveldi í grænum orkugjöfum áður en öldin er hálfnuð. Þetta sagði Ali al-Naimi, olíumálaráðherra Sádi-Arabíu, á ráðstefnu um loftlagsbreytingar í París síðastliðinn fimmtudag. Sádar hafa frá upphafi unnið gegn samþykkt loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna og verið virkir í því að grafa undan samstöðu ríkja um samninginn, en nú hefur ríkið breytt um stefnu. „Þeir hafa breytt um stefnu og setja stóran hluta af sínu fjármagni í að fjárfesta í endurnýjanlegri orku. Þeir eru núna í forystu hvað þetta varðar og við fjárfestingar í rannsóknum,“ sagði Halldór Þorgeirsson, forstöðumaður á loftlagsskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, á fundi Landsvirkjunar um framtíðaráhrif loftslagsbreytinga og aðgerðir gegn þeim síðastliðinn föstudag. Sádi-Arabía hefur mikil áhrif á markaðinn í þessum efnum sem stærsti olíuútflytjandi heimsins og stærsti notandi jarðolíu í Mið-Austurlöndum. Þá sagði ráðherrann á ráðstefnunni að einn daginn þyrfti Sádi-Arabía ekki að nota olíu, gas og kol sem orkugjafa. „Hvort það verður árið 2040 eða 2050 veit ég ekki,“ sagði Naimi og bætti því við að af þeim ástæðum yrði Sádi-Arabía einn daginn stórveldi í grænum orkugjöfum og gæti þannig farið að flytja út rafmagn í stað jarðefnaeldsneytis á komandi árum.
Mest lesið Faðirinn hafi ætlað að skilja hann eftir á flugvellinum Innlent Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Erlent Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Erlent Nýr aðstoðarmaður rétt fyrir ríkisstjórnarslit Innlent Funda um lausu ráðuneytin og boðað til ríkisstjórnarfundar Innlent „Falsfréttin“ og „þvælan“ sem raungerðist hratt Innlent „Kemur í ljós“ hvort boðaðir ráðherrar mæti Innlent „Jafn óábyrgt og að slíta stjórninni“ Innlent Getur ekki orða bundist yfir útspili Vinstri grænna Innlent Guðmundur Árni stefnir á oddvitasætið í Suðvesturkjördæmi Innlent Fleiri fréttir Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Harris situr fyrir svörum hjá Fox News á morgun Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Leggur til að beita hernum gegn andstæðingum sínum Leggur upp í leit að lífvænlegum aðstæðum á Evrópu Verðlaunaðir fyrir rannsóknir á áhrifum stofnana á auðlegð þjóða Nota óbreytta Palestínumenn til að leita að sprengjum og gildrum Ekki grunaður um að hafa ætlað að drepa Trump Vilja endurreist æru þeirra sem neituðu að berjast Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð „Þriðja banatilræðinu“ gegn Trump afstýrt Gripu eldflaugarþrep á stærð við Hallgrímskirkju með vélarmi Vill friðargæsluliðið út úr Suður-Líbanon strax Óútskýrður dauði ungrar blaðakonu í haldi Rússa Segja átta manna fjölskyldu hafa fallið í loftárás Ísraela Hundrað og fjögur ríki lýsa yfir stuðningi við Guterres Afnema tímabundið réttinn til að óska hælis Birtu gögn um heilsu Harris og sjúkrasögu hennar Sjá meira