
Guðmundur segir ekkert réttlæta það að beygja lagareglur eins og ríkisstjórnarflokkarnir hafi fyrirhugað með því að flytja hugmyndir um virkjanir í neðri hluta Þjórsár og á Sprengisandi í orkunýtingarflokk.
„Rúmt ár er í að niðurstöður næsta áfanga virkjanaáætlunar komi fram. Þar verða virkjanahugmyndir bornar saman og með því fæst vitneskja um hvar skást er að virkja.“
Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar, segir hins vegar að fáir af þeim sextán kostum sem eru í orkunýtingarflokki séu raunhæfir á næstu árum.

Fimm virkjanakostanna eru á forræði HS Orku á Reykjanesi. Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, sagði í Fréttablaðinu í gær að fyrirtækið vildi taka þátt í orkufrekum verkefnum en á meðan deilu þess við Norðurál um Helguvíkursamninginn væri ólokið væri fyrirtækið bundið.
„Við viljum að sjálfsögðu selja orku eins og unnt er, Norðuráli eða öðrum, en staðan er sú að HS Orka gerði samning við Norðurál Helguvík um umtalsvert mikla orku og uppi er ágreiningur um þýðingu hans í dag, nú þegar álverið er hvergi nærri byggt og ekki unnt að afhenda orku þangað.“