Erlent

Klæddist jakkafötum skreyttum nafni forsætisráðherrans

Atli Ísleifsson skrifar
Barack Obama Bandaríkjaforseti sótti Indland heim fyrr í vikunni.
Barack Obama Bandaríkjaforseti sótti Indland heim fyrr í vikunni. Vísir/AP/Twitter
Indverski forsætisráðherrann Narendra Modi er þekktur fyrir að vera meðvitaður um tísku. Klæðaval hans í heimsókn Barack Obama Bandaríkjaforseta til Indlands hefur nú vakið mikla athygli enda voru jakkaföt hans prýdd nafni forsætisráðherrans.

Dökkblá jakkafötin virtust úr fjarlægð vera nokkuð venjuleg en við nánari athugun má sjá að um sérstaklega sjálfhverft val á fötum var að ræða. Sést þar nafnið „Narendra Damodardas Modi“ skrifað lóðrétt aftur og aftur.

Nokkuð hefur verið rætt um jakkafötin í samfélagsmiðlum og hefur verið spurt hvort Modi hafi veirð undir áhrifum frá Hosni Mubarak, forseta Egyptalands, sem klæddist sambærilegum fötum árið 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×