Erlent

61 lík fundust í yfirgefinni líkbrennslu í Mexíkó

Atli Ísleifsson skrifar
Bardagar eiturlyfjagengja hafa lengi staðið í Acapulco.
Bardagar eiturlyfjagengja hafa lengi staðið í Acapulco. Vísir/EPA
Lík 61 manns hafa fundist í yfirgefnu líkbrennsluhúsi í mexíkóska bænum Acapulco. Líkin fundust eftir að íbúar í grennd við húsið kvörtuðu vegna þeirrar lyktar sem barst þaðan.

Hermenn og lögregla stóðu vörð við húsið, sem var lokað fyrir ári, á meðan líkin voru flutt á brott í Llano Largo hverfinu í Acapulco.

Bardagar eiturlyfjagengja hafa lengi staðið í borginni og er glæpatíðnin þar ein sú hæsta í landinu.

Acapulco.Mynd/Google Maps



Fleiri fréttir

Sjá meira


×