Erlent

Móðir og fimm börn létust í árásum í Sýrlandi

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Mynd þessi var tekin í Aleppo í Sýrlandi, þar sem átökin hafa verið hvað hörðust.
Mynd þessi var tekin í Aleppo í Sýrlandi, þar sem átökin hafa verið hvað hörðust. vísir/ap
Nítján týndu lífi í loftárás í Daraa í Sýrlandi í dag. Móðir og fimm börn hennar voru á meðal hinna látnu. Börnin voru öll yngri en átján ára.

Loftárásir hafa færst í aukana á þessu svæði á undanförnu, eftir að stjórnvöld misstu yfirráð á ákveðnum landsvæðum í héraðinu og vinna stjórnvöld nú að því að ná yfirráðum aftur.

Ekkert lát er á borgarastyrjöldinni í Sýrlandi en alls hafa um 215 þúsund fallið frá því átökin hófust árið 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×