Ólafur Ragnar sagði í yfirlýsingu sinni í gær að í „umróti mótmæla og óvissu og í kjölfar nýliðinna atburða“ hefði fjöldi fólks víða að úr þjóðfélaginu á undanförnum vikum höfðað til skyldu hans og beðið hann um að endurskoða ákvörðun sína um að hætta.
Þorsteinn Pálsson fyrrverandi ráðherra segir að önnur rök hljóti að búa að baki ákvörðun forsetans en óvissa og mótmæli. Hann gefur lítið fyrir þessar skýringar forsetans og segir þær barnalegar.
„Mér finnst það. Mér finnst rétt og eðlilegt að ef forseti tekur ákvörðun um að breyta ákvörðun um að hætta og gefa kost á sér eftir tuttugu ára setu þá eigi bara einfaldlega að segja þau rök sem raunverulega búa þar að baki. Það er alltaf betra að koma hreint til dyranna og segja satt,“ segir Þorsteinn.
Hann segir að ef ein af raunverulegum ástæðum forsetans fyrir ákvörðun sinni sé skortur á sterkum kandídötum þá hefði hann átt að gefa þeim meiri tíma til að stíga fram.
„Eftir að hafa setið í tuttugu ár og eftir að hafa tekið ákvörðun um áramót að stíga til baka þá finnst mér að það hefði verið eðlilegt af hans hálfu að gefa vel hæfum frambjóðendum, þungavigtar frambjóðendum, rýmri tíma,“ segir Þorsteinn.

Telur þú þig vera í hópi fremstu stjórnmálamanna lýðveldissögunnar? „Ég bara velti slíku ekki fyrir mér. Eitt af því sem þú lærir, ef þú verður fræðimaður eins og ég hef verið og kennt þessi fræði og hefur sögulega yfirsýn, er það að það er tiltölulega tilgangslaust að velta slíku fyrir sér því sagan kveður oft upp mjög óvænta dóma,“ segir Ólafur Ragnar.