Enski boltinn

Bournemouth hafnaði tilboði West Ham í tvo leikmenn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Wilson og Ritchie skoruðu samtals níu mörk í vetur.
Wilson og Ritchie skoruðu samtals níu mörk í vetur. vísir/getty
Bournemouth hafnaði 20 milljóna punda tilboði West Ham United í framherjann Callum Wilson og kantmanninn Matt Ritchie.

„Við fengum tilboð í gær. Það var frá West Ham en því var hafnað. Við ætlum ekki að selja þessa leikmenn. Við viljum bæta leikmannahópinn okkar, ekki veikja hann,“ sagði Eddie Howe, knattspyrnustjóri Bournemouth, eftir að hans menn töpuðu 3-1 fyrir Manchester United á Old Trafford í gær.

West Ham ætlar sér stóra hluti á næsta tímabili og bauð samtals 20 milljónir punda í Wilson og Ritchie sem vöktu athygli fyrir frammistöðu sína í vetur.

Wilson skoraði fimm mörk í sjö fyrstu leikjum tímabilsins, þ.á.m. þrennu gegn West Ham, áður en hann sleit krossband í hné. Hann sneri aftur í síðasta mánuði en náði ekki að skora í þeim sex leikjum sem hann spilaði.

Ritchie, sem er skoskur landsliðsmaður, skoraði fjögur mörk og gaf sex stoðsendingar á nýafstöðnu tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×