Enski boltinn

Tölur gærkvöldsins sýna að Rooney á framtíðina fyrir sér á miðjunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Wayne Rooney skoraði og lagði upp mark í 3-1 sigri Manchester United á Bournemouth á Old Trafford í lokaleik ensku úrvalsdeildarinnar í gær.

Wayne Rooney lék á miðjunni í gær og eftir leikinn talaði hann sjálfur um það að þar sjái hann sig í framtíðinni. Wayne Rooney skoraði fyrsta mark leiksins og lagði upp það þriðja fyrir Ashley Young.

„Stundum þarftu að taka réttu ákvarðanirnar á þínum ferli og eins og staðan er núna þá er betra fyrir mig að spila aftar á vellinum," sagði Wayne Rooney við BBC eftir leikinn.

„Það gæti verið öðruvísi hjá enska landsliðinu þar sem ég gæti áfram spilað sem framherji en ég sé fyrir mér að ég spili á miðjunni hjá United á næsta tímabili," sagði Rooney.

BBC sýndi það með tölfræði Wayne Rooney frá því í leiknum í gær að miðjustaðan ætti að henta fyrirliða liðsins vel.

Wayne Rooney gaf 100 sendingar í leiknum eða meira en allir aðrir leikmenn Manchester United og 88 prósent þeirra heppnuðust.

Wayne Rooney komst 115 sinnum í boltann eða meira en allir aðrir leikmenn Manchester United.

Wayne Rooney átti tvo skot í leiknum eða jafnmikið og Juan Mata. Enginn annar leikmaður Manchester United náði því.

Wayne Rooney reyndi 65 sendingar á sóknarvelli eða meira en allir aðrir leikmenn Manchester United og 83 prósent þeirra heppnuðust.

Wayne Rooney vann boltann tólf sinnum eða oftar en allir aðrir leikmenn Manchester United.

Wayne Rooney átti þrjár lykilsendingar í leiknum, sendingar sem sköpuðu færi, og þar af var ein stoðsending. Enginn annar leikmaður Manchester United náði því.

Harry Kane (Tottenham), Jamie Vardy (Leicester), Daniel Sturridge (Liverpool) og Marcus Rashford (Manchester United) eru allir í EM-hópnum hans Roy Hodgson og það er því nóg af möguleikum í framherjastöður landsliðsins á EM í sumar spili Rooney aftar á vellinum.

„Ég er viss um að Roy Hodgson hafi sínar eigin hugmyndir um hvað hann telji vera besta staðan fyrir mig. Ég gæti vissulega spilað á miðjunni í enska landsliðinu en Roy ræður þessu. Við munum ræða málin þegar liðið kemur saman og þá segir hann mér hvar hann vill að ég spili," sagði Rooney.

Wayne Rooney vantar nú aðeins 4 mörk til að jafna félagsmet Bobby Charlton sem skoraði á sínum tíma 249 mörk fyrir Manchester United. Rooney er þegar búinn að taka metið af Bobby Charlton yfir flest mörk fyrir enska landsliðið.

Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×