Innlent

Búist við stormi seinni partinn

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Gert er ráð fyrir að það blási og snjói um mestallt land í kvöld og nótt en á morgun er búist við köldu og skaplegu veðri með éljum á víð og dreif.
Gert er ráð fyrir að það blási og snjói um mestallt land í kvöld og nótt en á morgun er búist við köldu og skaplegu veðri með éljum á víð og dreif. vísir/vilhelm
Búist er við stormi all víða um land seinni partinn í dag og fram yfir miðnætti. Gert er ráð fyrir að það blási og snjói um mestallt land í kvöld og nótt en á morgun er búist við köldu og skaplegu veðri með éljum á víð og dreif.

„Djúp lægð nálgaðist landið í nótt og olli hún sunnan stormi með rigningu eða slyddu. Lægðin fer yfir landið í dag og þá er hægari vindur inni í lægðarmiðjunni. Vestan vindstrengur af stormstyrk er sunnan lægðarmiðjunnar og er hann væntanlegur inn á sunnanvert landið seinnipartinn með éljagangi. Á svipuðum tíma gengur norðan stormur inn á Vestfirði með snjókomu og frosti,“ segir í athugasemdum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Frá fimmtudegi fram á jóladag er áfram spáð köldu lofti yfir landinu svo snjó mun ekki taka upp og hvít jól víða líklega. Enn er óvissa í spánni fyrir jólin varðandi hvað mikið muni snjóa í viðbót og hvort muni blása með, en það hefur mikil áhrif á færð á vegum.

Veðurhorfur á landinu:

Sunnan 10-18 m/s og rigning eða slydda. Hiti 2 til 7 stig. Gengur í vestan 15-25 með éljum á sunnanverðu landinu seinnipartinn, en norðlægari og snjókoma á Vestfjörðum. Kólnandi veður. Blæs og snjóar víða um land í nótt, en fer síðan að lægja. Breytileg átt, yfirleitt á bilinu 5-10 á morgun og dálítil él. Frost 1 til 8 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:

Sunnan 8-15 og skúrir, hiti 3 til 6 stig. Gengur í vestan 15-23 með éljum seint í dag og kólnandi veðri. Lægir í kvöld og nótt, breytileg átt 3-8 á morgun. Él og vægt frost.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×