Viðskipti innlent

Íslandsbanki opnar nýtt útibú

Sæunn Gísladóttir skrifar
Opnun útibús í Norðurturni í gær.
Opnun útibús í Norðurturni í gær.
Nýtt og sameinað útibú Íslandsbanka opnaði í Norðurturni í Kópavogi í gær. Þrjú útibú sameinast í hinu nýja útibúi: Útibúin í Þarabakka, á Digranesvegi og á Garðatorgi. Útibúið í Norðurturni verður eitt af stærstu útibúum Íslandsbanka og er staðsett miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, nálægt verslunarkjarna, einstaklings- og atvinnubyggð. Næg bílastæði eru við útibúið og aðgengi gott. Lilja Pálsdóttir er útibússtjóri hins nýja útibús í Norðurturni, Kári Tryggvason er viðskiptastjóri einstaklinga og Karl Sólnes Jónsson er viðskiptastjóri fyrirtækja segir í tilkynningu.

Nýtt og sameinað útibú verður öflug fjármálamiðstöð sem mun bjóða upp á vandaða fjármálaráðgjöf fyrir viðskiptavini bankans. Öll hönnun og virkni útibúsins tekur mið af sveigjanleika í skipulagi, nýrri tækni, öflugri ráðgjöf og þjónustuupplifun viðskiptavina.

„Við erum afar stolt af útibúi okkar í Norðurturni þar sem við mætum þörfum viðskiptavina Íslandsbanka. Hátt þjónustustig verður í aðalhlutverki með það að markmiði að mæta kalli og kröfum viðskiptavina okkar. Um leið og stafrænni vegferð fleygir áfram þá hafa kröfur um persónulega og góða þjónustu ekkert minnkað en breyst. Í Norðurturni verður boðið upp á sérfræðiþekkingu hjá vottuðum fjármálaráðgjöfum útibúsins samhliða því að auka möguleika á allri sjálfsafgreiðslu. Þannig verða sérstakir hraðþjónusturáðgjafar til þjónustu reiðubúnir til að aðstoða viðskiptavini svo hægt sé að gera heimsóknina í útibúið sem þægilegasta og mikið verður lagt upp úr ánægjulegri upplifun viðskiptavina," segir Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs í tilkynningu.

 


Tengdar fréttir

Telur Íslandsbanka tilbúinn til sölu

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir bankann ekki þann sama og fyrir árið 2008. Fram undan eru flutningar og hagræðingar. Hún gagnrýnir skattaumhverfi bankanna á Íslandi sem hún segir hamla samkeppni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×