Verum samferða inn í framtíðina Magnús Geir Þórðarson skrifar 15. september 2016 07:00 Fjölmiðill í þjónustu almennings þarf bæði að skipta máli og koma að gagni. Í yfir 80 ár hefur Ríkisútvarpið verið samferða þjóðinni við leik og störf, boðið upp á fréttir og dagskrá sem upplýsir, fræðir og skemmtir, verið hreyfiafl góðra verka og ávallt staðið vaktina þegar mikið liggur við. Staða RÚV í dag er traust og við erum vel í stakk búin til að aðlagast tækni- og samfélagsbreytingum. Sem hluta af stefnumótun leitum við nú eftir aðkomu almennings til að móta áherslur og forgangsröðun RÚV til framtíðar. Þannig vonumst við til að geta sem best sinnt því hlutverki sem þjóðin væntir af Ríkisútvarpinu sem við eigum saman.Nýjar áherslur skila aukinni ánægju Á undanförnum misserum höfum við lagt enn ríkari áherslu á sérstöðu Ríkisútvarpsins með því að setja innlent efni og menningarefni í forgang, bæta þjónustu við landsbyggðina og umbylta þjónustu við börn. Áhersla á nýtt íslenskt leikið efni hefur verið stóraukin og vandaður fréttaflutningur færir okkur nær viðburðum hér heima og á alþjóðavísu. Við höfum hafið samtal við áhorfendur og hlustendur um land allt, meðal annars með hringferð um land allt og stuðlum þannig að því að þjónustan þróist til framtíðar í takt við óskir ykkar.Viðhorf almennings jákvæðara Reglulegar hlustunar- og áhorfsmælingar draga fram mikla notkun þjóðarinnar á miðlum RÚV en ný viðhorfskönnun Gallup staðfestir einnig að jákvæðni þjóðarinnar gagnvart RÚV og þjónustu þess hefur ekki verið meiri frá því Ríkisútvarpið ohf. var stofnað árið 2007. Tæp 73% aðspurðra eru jákvæð gagnvart Ríkisútvarpinu. Könnunin staðfestir mikla og aukna ánægju með flesta þætti starfsemi RÚV og almenna sátt um nýjar áherslur. Aukin áhersla RÚV á fjölbreytt íslenskt efni og menningu í miðlum RÚV fellur í frjóan jarðveg en mikill meirihluti svarenda leitar helst eftir íslensku efni, fréttum og menningarefni í miðlum Ríkisútvarpsins. Ánægja með dagskrá Rásar 1 og RÚV sjónvarps hefur verið að aukast og 63% landsmanna eru ánægð með efnisval á RÚV.is. KrakkaRÚV, ný þjónusta við börn, fær frábær viðbrögð og notkun almennings og ánægja með Sarpinn hefur aldrei verið meiri. Sem fyrr nýtur RÚV yfirburðatrausts á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Velvild og velgengni sem staðfest er í könnuninni er þó fyrst og fremst hvatning um að halda áfram og gera enn betur. Því horfum við nú fram á veginn til að tryggja áframhaldandi daglegt samtal við íslenskan almenning.Taktu þátt í að móta framtíðaráherslur Grundvallarmarkmið með starfsemi almannaþjónustumiðils hafa ekki breyst þó við upplifum örar samfélags- og tæknibreytingar. Á tímum þar sem erlent afþreyingarefni á erlendum tungum er á hverju strái er enn mikilvægara en fyrr að þjóðin hafi aðgengi að vönduðu innlendu efni úr okkar nærumhverfi, að í boði sé vandað efni á íslenskri tungu og æsku landsins bjóðist uppbyggilegt dagskrárefni í hæsta gæðaflokki, óháð búsetu og efnahag. Þörfin fyrir þjónustu öflugs Ríkisútvarps í flóru fjölbreyttra erlendra- og innlendra einkamiðla hefur því sjaldan verið meiri. Sem fyrr er gerð hin sjálfsagða krafa um hagkvæmni og áframhaldandi jafnvægi í rekstri. Nú og til framtíðar aukast væntingar um aðgengi hvar og hvenær sem er. RÚV hefur verið samferða þjóðinni hingað til og ætlar að vera það áfram. Til að uppfylla nýjar þarfir þarf að forgangsraða enn skýrar en fyrr. Við skorum á þig að hjálpa okkur að móta þjónustuna við þig og næstu kynslóðir. Við höfum opnað gátt á forsíðu RÚV.is þar sem við hvetjum þig til að segja okkur hvað þér finnst. Því hvetjum við þig til að fara inn á RÚV.is, segja þína skoðun og vera þannig með í að móta framtíðina fyrir RÚV okkar allra.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Óhæfur leiðtogi? Franklín Ernir Kristjánsson Skoðun Loksins, Gunnar Bragi! Einar G. Harðarson Skoðun Hvorki útlendingahatur né gestrisni Hildur Þórðardóttir Skoðun Skynsemi Sigmundar Davíðs rýnd – Er ESB aðild/Evra tóm tjara? Ole Anton Bieltvedt Skoðun Ísland þarf ríkisstjórn um almannahagsmuni – ekki sérhagsmuni Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun Kílómetragjald: Gjöf fyrir marga, refsiskattur fyrir aðra Ágústa Ágústsdóttir Skoðun Innflytjendalandið Ísland – nokkrar staðreyndir Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þau eru við, við erum þau Arnar Eggert Thoroddsen Skoðun Akademískt frelsi er í hættu – Tími til aðgerða Sigrún Ólafsdóttir,Baldvin Zarioh,Hjördís Sigursteinsdóttir Skoðun Vaxandi stríðsátök, en með íslenskum vopnum? Eldur Smári Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Við lifum lengur – Jákvæð áskorun fyrir lífeyrissjóði Magnús Helgason skrifar Skoðun Krabbameinsgreining og andleg líðan Helga Jóna Ósmann Sigurðardóttir skrifar Skoðun Um „orðskrípið“ inngildingu Kjartan Þór Ingason skrifar Skoðun Öryggi og sjálfbærni í ferðaþjónustu: Hvað segir ný könnun? Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Innflytjendalandið Ísland – nokkrar staðreyndir Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Akademískt frelsi er í hættu – Tími til aðgerða Sigrún Ólafsdóttir,Baldvin Zarioh,Hjördís Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun Óljós viðurkenning þrátt fyrir stefnu stjórnvalda Sandra B. Franks skrifar Skoðun Sömu rök og styðja rétt kvenna til þungunarrofs eiga við um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman,Steinar Harðarson skrifar Skoðun Vaxandi stríðsátök, en með íslenskum vopnum? Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Ísland þarf ríkisstjórn um almannahagsmuni – ekki sérhagsmuni Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þau eru við, við erum þau Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Óhæfur leiðtogi? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Loksins, Gunnar Bragi! Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Skynsemi Sigmundar Davíðs rýnd – Er ESB aðild/Evra tóm tjara? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Hvorki útlendingahatur né gestrisni Hildur Þórðardóttir skrifar Skoðun Menntakerfið í öfuga átt við atvinnulífið: Hvers vegna eykst álag á nemendur á meðan vinnuvikan styttist? Karl Liljendal Hólmgeirsson skrifar Skoðun Er ekki einokun Háskóla Íslands óviðunandi? Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjald: Gjöf fyrir marga, refsiskattur fyrir aðra Ágústa Ágústsdóttir skrifar Skoðun Róttækar og tafarlausar umbætur Arnar þór Jónsson,Kári Allansson skrifar Skoðun Afleiðingar ríkisafskipta: Af hverju skaðleg einokun er ekki til á frjálsum markaði Eiríkur Magnússon skrifar Skoðun Er verið að blekkja fólk? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Það er ekkert til sem heitir full vinnustytting með 15 mínútna neysluhléi Jóhanna Helgadóttir skrifar Skoðun Um blöndun menningarheima Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Ökuskírteini á hval Sigursteinn Másson skrifar Skoðun Barningur smáframleiðenda Fjóla Einarsdóttir skrifar Skoðun Erum við í ofbeldissambandi? Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Ó nei, ekki aftur! Leyfisveitingar fyrir Hvammsvirkjun Margrét Erlendsdóttir skrifar Skoðun Siddhi: Yfirnáttúrulegir hæfileikar Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar Skoðun Innviðaskuldin mikla Grímur Atlason skrifar Skoðun Umsókn um stöðu kennara í (vonandi) nálægri framtíð Heiða Ingunn Þorgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Ísland þarf ríkisstjórn um almannahagsmuni – ekki sérhagsmuni Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun
Akademískt frelsi er í hættu – Tími til aðgerða Sigrún Ólafsdóttir,Baldvin Zarioh,Hjördís Sigursteinsdóttir Skoðun
Skoðun Akademískt frelsi er í hættu – Tími til aðgerða Sigrún Ólafsdóttir,Baldvin Zarioh,Hjördís Sigursteinsdóttir skrifar
Skoðun Sömu rök og styðja rétt kvenna til þungunarrofs eiga við um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman,Steinar Harðarson skrifar
Skoðun Ísland þarf ríkisstjórn um almannahagsmuni – ekki sérhagsmuni Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Menntakerfið í öfuga átt við atvinnulífið: Hvers vegna eykst álag á nemendur á meðan vinnuvikan styttist? Karl Liljendal Hólmgeirsson skrifar
Skoðun Afleiðingar ríkisafskipta: Af hverju skaðleg einokun er ekki til á frjálsum markaði Eiríkur Magnússon skrifar
Skoðun Það er ekkert til sem heitir full vinnustytting með 15 mínútna neysluhléi Jóhanna Helgadóttir skrifar
Ísland þarf ríkisstjórn um almannahagsmuni – ekki sérhagsmuni Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun
Akademískt frelsi er í hættu – Tími til aðgerða Sigrún Ólafsdóttir,Baldvin Zarioh,Hjördís Sigursteinsdóttir Skoðun