Lyfjaútgjöld 600 milljónir fram úr áætlun Sveinn Arnarson skrifar 19. desember 2016 07:00 Taka myndir í apóteki af lyfjum - ekki einu glasi eða tveimur heldur mörgum tegundum. Gott að fá lyfjafræðing eða afgr.mann til að standa við lyfin og raðað þeim upp. Vísir/Pjetur
Útgjöld hins opinbera til lyfjakaupa stefna í að fara um 600 milljónir króna fram úr fjárheimildum í ár þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi ákveðið að setja um tvo milljarða í málaflokkinn í febrúar á þessu ári. þetta sýnir minnisblað Sjúkratrygginga sem sent var velferðarráðuneytinu í ágúst síðastliðnum. Sé horft til fyrstu sex mánaða ársins er framúrkeyrslan frá fjárheimildum 11 prósent en endar í um níu prósentum í árslok. Segir í minnisblaðinu að skýringar sé að finna í innleiðingu nýrra lyfja. Fréttablaðið greindi frá því um miðjan september að fé til innleiðingar nýrra lyfja væri uppurið. Eftir þann tíma hefur Lyfjagreiðslunefnd hins vegar samþykkt leyfisskyldu vegna tveggja lyfja sem eykur kostnað um 60 milljónir á ársgrundvelli. „Með leyfisskyldum lyfjum er átt við þau lyf sem eingöngu eru notuð í samræmi við klínískar leiðbeiningar og eru jafnan kostnaðarsöm og vandmeðfarin,“ segir Guðrún Gylfadóttir, formaður lyfjagreiðslunefndar. Að auki hefur nefndin samþykkt einstaklingsundna greiðsluþátttöku vegna níu lyfja og er áætlaður kostnaður þar einnig um 60 milljónir króna á ársgrundvelli.Jakob Falur Garðarsson, formaður frumtaka - samtaka framleiðenda frumlifjaAf þessu að dæma er ljóst að lyfjakaup munu fara fram úr fjárlögum. Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Frumtaka, félags frumlyfjaframleiðenda, segir lyfjaverð hins vegar ekki of hátt. „Það er fjarri sanni að lyfjaverð á Íslandi sé hátt. Ég nefni því til staðfestingar að verð sjúkrahúslyfja er samkvæmt reglugerð það lægsta á Norðurlöndunum. Því til viðbótar, þá er verðið fasttengt gengi krónunnar, þannig að um hver mánaðamót kemur ný lyfjaverðskrá sem tekur mið af gengisbreytingum. Gríðarleg styrking krónunnar undanfarin misseri skilar sér því strax í verðið og hefur beinar afleiðingar til lækkunar lyfjaverðs og hefur verðið nú lækkað um tugi prósenta á tiltölulega stuttum tíma,“ segir Jakob Falur.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Innlent Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Innlent Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða Innlent Fær mun minni fjárstuðning frá almenningi Erlent „Við þolum ekki þetta ástand mikið lengur“ Innlent Tveir slasaðir í alvarlegu umferðarslysi Innlent Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Innlent Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Erlent Ekki allir sem geta leitað í bakland eftir barnapössun Innlent Skæð fuglaflensa í hröfnum og hettumáfum Innlent Fleiri fréttir Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Skæð fuglaflensa í hröfnum og hettumáfum Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Engin afsökun lengur fyrir því að mæta ekki í brjóstaskimun Tveir slasaðir í alvarlegu umferðarslysi Ekki allir sem geta leitað í bakland eftir barnapössun Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða „Við þolum ekki þetta ástand mikið lengur“ Ekki útilokað að fleiri skólar bætist í hópinn Verkfallsnemendur með áhyggjur af náminu og tendrun jólageitarinnar Skýrist á mánudag hvort læknar fari í verkfall Misspennt fyrir verkfalli: „Þetta er fínt, meira frí“ Fjármálaráðherra búinn að endurskoða þjóðlendukröfur Hægir á landrisi Samið um flug til Eyja næstu þrjá vetur Sigmundur komst á forsíðuna en ekki Messi Rannsaka tengsl sköpunargáfu og ADHD Verkfall samþykkt með 100 prósent atkvæða í leik- og grunnskólum Reyna aftur að leggja niður Ríkisútvarpið ohf. Kæra ferðaþjónustufyrirtæki fyrir framkvæmdir í íshellum Efast um að málinu verði áfrýjað Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga Starfsmenn þessara skóla fara í verkfall Óeðlilegt að Guðmundur Ingi hafi hringt í ríkislögreglustjóra Albert sýknaður Komugjald í brjóstaskimun lækkar gríðarlega Þú finnur Íslendinga út um allan heim í fluginu Halla talar ensku við kónginn: „Ég held að það sé kannski nýi tíminn“ Riddari kannana mætir í Samtalið Sjá meira