Um þriðjungur aðspurðra Ísraela segja Pútín vera mann ársins Stefán Ó. Jónsson skrifar 2. janúar 2016 13:58 Vladimír Pútín Rússlandsforseti. Vísir/AFP
Vladimír Pútín Rússlandsforseti nýtur töluverðrar hylli í Ísrael ef marka má skoðanakönnun sem framkvæmd var þar í landi á dögunum. Þar var hann útnefndur maður ársins 2015 – og það með nokkrum yfirburðum. Hann hlaut um 30 prósent greiddra atkvæða en næst á eftir kom Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sem hlaut um 16 prósent atkvæða. Könnunin var framkvæmd af miðlunum Jerusalem Post og Ma’ariv Sof Hashavua í lok liðins árs. Úrtakið var þó ekki mjög stórt, um 527 fullorðnir Ísraelar tóku þátt og skekkjumörkin voru 4,3 prósent. Niðurstöðurnar gefa þó ótvírætt til kynna að Pútín hefur haft töluverð áhrif á Ísraela á árinu – í það minnsta þau 29 prósent sem sögðu hann vera mann síðasta árs. Sem fyrr segir kom Merkel í öðru sæti með 16 prósent atkvæða og þar næst Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, sem hlaut 15 prósent. Þrjú prósent sögðu Abu Bakr Al-Baghdadi, leiðtoga Íslamska ríksins, vera mann ársins. Könnunin leiddi einnig í ljós að um helmingur Ísraela telur hryðjuverk vera stærstu ógnina við land sitt á komandi árum. Þá töldu um 67 prósent að Ísrael gæti ekki náð pólitískri lausn á deilunni við Palestínumenn. Þá eru landsmenn vonlitlir um að Íran muni standa við nýsamþykkt kjarnorkusamkomulag – 80 prósent töldu að stjórnvöld í Teheran myndu ekki standa við orð sín.
Mest lesið Engu um að kenna nema „handónýtu kerfi“ Innlent Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Innlent „Ekki næstum því allir íbúar með þetta app“ Innlent Banaslysið aftur til héraðssaksóknara Innlent Drottningin baðst afsökunar á því að geta ekki boðið betra veður Innlent Koma siglandi og sótt á hestvagni Innlent Grunaði í máli Madeleine McCann sýknaður af öðrum brotum Erlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent „Þú hugsar bara: Hver var skotinn?” Erlent „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Erlent Fleiri fréttir Sjúkrahús í Kaliforníu ákært fyrir að neita óléttri konu um neyðaraðstoð Hlutu Nóbelinn fyrir framlag til vélræns náms Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Grunaði í máli Madeleine McCann sýknaður af öðrum brotum Svaraði spurningum um Netanyahu, Pútín og reynslu af skotvopnum „Þú hugsar bara: Hver var skotinn?” Ekkert lát á aðgerðum Ísraelshers gegn Hamas og Hezbollah „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Sjá meira