Innlent

Öll rúm full nær allt árið um kring

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Höfum ekki við, segir Þórarinn Tyrfingsson.
Höfum ekki við, segir Þórarinn Tyrfingsson. vísir/e.ól
Um 130 manns voru í meðferð á sjúkrahúsum SÁÁ yfir jólin. Nær öll rúm eru full líkt og sakir standa en þannig er það nær allt árið um kring, segir Þórarinn Tyrfingsson, forstjóri á sjúkrahúsinu Vogi. Hann segist hættur að sjá sveiflur eftir árstíma en áður fyrr var aðsóknin mest um og eftir hátíðirnar.

„Þetta var bundið við vertíðar og sumar og svona en maður er hættur að sjá þessar sveiflur núna. Það koma stöðugt fleiri til okkar og við höfum ekki við að sinna því sem að berst,“ segir Þórarinn í samtali við Vísi.

Þórarinn segir biðtímann misjafnan, en að í sumum tilfellum sé hann allt að fjórir mánuðir. „Það fer eftir því hvaða sögu fólk hefur. En þetta bitnar mest á þeim sem eru veikastir og voru hjá okkur fyrir stuttu, en þurfa á sjúkrahúsvist að halda.“

Hins vegar sé það langtum dýrara að láta fólk bíða. „Þeir sem bíða eru mjög dýrir fyrir þjóðfélagið. Það er rosaleg peningaeyðsla því þá fara þeir bara í úrræði sem eru mjög dýr; inn á bráðamóttöku, gjörgæslu, lyfjadeildir og annað slíkt. Þannig að það sparast bara peningar við að taka þetta fólk strax inn,“ segir hann.

Þórarinn segir þá breytingu hafa átt sér stað á undanförnum árum að fólk neyti læknadóps í meiri mæli en áður. „Þetta er svona hægfara þróun. Síðustu sex, sjö árin hefur það verið þannig að fólk notar meira af lækningalyfjum, og eflaust hefur dregið úr ólöglegum vímuefnum á móti. Þetta er gríðarlega mikill vandi, þessi lyfjavandi. En það er alþjóðlegt og þekkist um allan heim.“

Aðspurður segir hann jólahald á sjúkrahúsum SÁÁ hafa verið hefðbundið. Boðið hafi verið upp á ljúffengan mat og að fólk hafi átt góðar stundir saman.

Starfsstöðvar SÁÁ er sjúkrahúsið Vogur, Vík á Kjalarnesi, Staðarfell á Fellsströnd í Dalasýslu og búsetuúrræðið Vin í Reykjavík en þar eru um 20 manns til heimilis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×