Fótbolti

Jöfnuðu heimsmet Ajax

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
TNS er í sérflokki í Wales.
TNS er í sérflokki í Wales. vísir/getty
Velska meistaraliðið The New Saints skráði sig í sögubækurnar í gær.

Þá vann liðið sinn 26. leik í röð og jafnaði þar með heimsmet hollenska félagsins Ajax yfir flesta sigurleiki í röð. Það met var sett árið 1972 en Johan Cruyff var á meðal leikmanna Ajax það ár.

TNS getur svo eignað sér metið er liðið spilar við Cefn Druids þann 30. desember næstkomandi.

Óhætt er að segja að TNS hafi mikla yfirburði í velska boltanum en liðið er nú með 21 stigs forskot á toppi úrvalsdeildarinnar er tímabilið er hálfnað.

Félagið er búið að hampa meistaratitlinum fimm ár í röð og sá sjötti í röð er handan við hornið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×