Fótbolti

Viðar Örn gulltryggði sigur Maccabi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viðar Örn er í hópi markahæstu manna í ísraelsku deildinni.
Viðar Örn er í hópi markahæstu manna í ísraelsku deildinni. vísir/getty
Viðar Örn Kjartansson kom mikið við sögu þegar Maccabi Tel Aviv vann 2-4 sigur á Hapoel Haifa í ísraelsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Viðar gulltryggði sigur Maccabi þegar hann skoraði fjórða mark liðsins tveimur mínútum fyrir leikslok. Hann átti einnig þátt í öðru marki Maccabi sem var sjálfsmark leikmanns Hapoel.

Þetta var sjötta mark Viðars í 10 deildarleikjum fyrir Maccabi. Hann er í hópi markahæstu manna í ísraelsku deildinni.

Viðar og félagar eru í 2. sæti deildarinnar með 24 stig eftir 13 umferðir. Hapoel Be'er Sheva situr á toppnum með 31 stig og á auk þess leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×