Vilja að Svíar prófi borgaralaun Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 5. janúar 2016 12:00 Vinnutekjur leggjast ofan á borgaralaun án nokkurra skerðinga. NORDICPHOTOS/AFP
Sérfræðingar sem leggja eiga grunninn að tilraun finnskra stjórnvalda til að koma á borgaralaunum segja í aðsendri grein í Sænska dagblaðinu að það yrði ánægjuefni ef Svíar myndu sjálfir gera slíka tilraun eða taka þátt í þeirri finnsku. Um er að ræða skilyrðislausa grunnframfærslu sem felur í sér að allir fá greidda lágmarksupphæð frá ríkinu. Bótakerfi verða aflögð og þar með sparast vinna opinberra stofnana. Vinnutekjur leggjast ofan á borgaralaun. Ekki er gert ráð fyrir neinum skerðingum. Áætlun um fyrirkomulagið á að liggja fyrir í Finnlandi í nóvember á þessu ári. Tilraunin á að standa yfir í eitt ár og hefjast árið 2017. Rætt er um að borgaralaunin muni nema um 800 evrum á mánuði eða sem samsvarar 112 þúsundum íslenskra króna. Sérfræðingarnir benda á að margar tilraunir hafi verið gerðar með borgaralaun, einkum í þróunarlöndum. Nefna þeir Indland og Namibíu í því samhengi. Jafnframt benda þeir á tilraunir sem gerðar voru í Bandaríkjunum og Kanada á áttunda áratug síðustu aldar. Niðurstöðurnar hafi verið áhugaverðar en ekki sé beinlínis hægt að nýta þær í norrænum nútímasamfélögum. Í Hollandi er í fjórum borgum ráðgert að láta tilraunahópa, sem fá framfærslustyrk frá sveitarfélögum, fá borgaralaun í staðinn. Meta á síðan virkni þessara borgara í kjölfarið. Á Íslandi hafa þingmenn Pírata lagt fram þingsályktunartillögu um borgaralaun eða skilyrðislausa grunnframfærslu.
Mest lesið „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Erlent Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Innlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent Orðinn „kokhraustur kvenhatari“ og tækifærissinni Innlent Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu Erlent „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Erlent Segir að verjast þurfi árásum á flugvöllinn með fullum hnefa Innlent Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Innlent Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Erlent Fleiri fréttir „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Sjá meira