Búið að skrifa undir SALEK-samkomulagið Samúel Karl Ólason skrifar 21. janúar 2016 17:47 Frá undirrituninni. Mynd/ASÍ
Búið er að skrifa undir kjarasamning Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Samningurinn hefur verið kallaður SALEK-samkomulagið. Samningurinn gildir frá 1. janúar til 31. desember 2018. Á næstu dögum verður kynnt atkvæðagreiðsla, en henni þarf að vera lokið fyrir 26. febrúar. Í ár mun 6,2 prósenta almenn launahækkun taka gildi, að lágmarki 15 þúsund krónur á mánuði, í stað 5,5 prósenta launaþróunartryggingar. Launahækkunin kemur til framkvæmda 1. janúar. Þann 1. maí 2017 verður framkvæmd almenn launahækkun um 4,5 prósent. Ári seinna verður almenn launahækkun þrjú prósent. „Við teljum að kjarasamningurinn feli í sér verulegar viðbætur við þær hækkanir sem samið var um á síðasta ári fyrir félagsmenn,“ segir á vef ASÍ Lífeyrisréttindi breytast einnig og hækkar framlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð. Þann 1. júní í ár hækkar framlagið um hálft prósentustig og verður 8,5 prósent. Ári seinna hækkar það um 1,5 prósentustig og sama hækkunin endurtekur sig 2018 svo framlag atvinnurekenda verður 11,5 prósent. Samninginn í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Viðskipti innlent Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Viðskipti innlent Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS Viðskipti erlent Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Viðskipti innlent Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Jóna Björk tekur við Garðheimum Segja son og tengdadóttur Reynis ekki koma nálægt Mannlífskaupum EastJet flýgur til Basel og Lyon Margrét áfram rektor á Bifröst Ingibjörg Þórdís til Elko Fimm mætt í Kauphöllina RÚV sker sér stærri sneið af auglýsingakökunni Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Keppinautar eigi ekki að opna bækur sínar hver gagnvart öðrum Segir kaupverðið á Mannlífi ekki hátt Hætta í stjórn vegna yfirvofandi kaupa á Mannlífi Heimkaup undir hatt Samkaupa Leggja nýjan jarðstreng til Súðavíkur Heimildin að ganga frá kaupum á Mannlífi Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar Segir eðlilegar skýringar á hæsta raforkuverðinu Efling hafi líklega sett Íslandsmet í óhróðri Bogi í Icelandair kaupir einbýlishús af Pétri í Eykt Fyrrverandi þingmenn vilja verða forstjórar Kríu Sjá meira