Fórnarlamb Johnson vildi vernda hann Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. febrúar 2016 11:15 Johnson með unnustu sinni, Stacey Flounders, á dögunum. Vísir/Getty
Vitnisburður fimmtán ára stúlku sem var dregin á tálar af knattspyrnumanninum Adam Johnson var fluttur í réttarhöldunum gegn knattspyrnumanninum í Englandi í gær. Johnson hefur gengist við því að hafa vingast við stúlkuna í þeim tilgangi að koma á kynferðislegu sambandi við hana sem og einni af þremur kærum um kynferðislegt athæfi með barni. Hann neitar sök í hinum tveimur kæruliðunum. Stúlkan, sem er enn í skóla, lýsti því hvernig hún kynntist Johnson og hvernig samband þeirra þróaðist. Það byrjaði með því að hún sendi honum vinabeiðni á Facebook. Johnson samþykkti hana og hóf að spjalla við hana á netmiðlum.Sjá einnig: Johnson var átrúnaðargoð stúlkunnar sem hann misnotaði Þau hittust svo að Johnson gæti gefið henni tvær áritaðar Sunderland-treyjur en eftir það sendi hann stúlkunni skilaboð þar sem hann sagði að hún stæði honum í þakkarskuld fyrir treyjurnar. Johnson og stúlkan, sem nýtur nafnleyndar vegna aldurs, hittust síðar og stunduðu að sögn stúlkunnar kynferðislegt athæfi í bifreið hans. Þau kysstust og það gekk svo langt að hann setti hönd hennar á kynfæri sín.Sjá einnig: Sunderland rekur Johnson „Hann setti hönd mína á buxurnar sínar og setti svo höndina mína þangað niður. Mér hefði þótt það vandræðalegt að draga höndina til baka þá,“ sagði hún. „Mér fannst ég knúin til að gera þetta út af því að hann dró niður buxurnar sínar.“ „Það er erfitt að muna hvernig þetta byrjaði. Ég hef bara reynt að gleyma þessu öllu saman.“Johnson hefur verið fastamaður í liði Sunderland á núverandi leiktíð.Vísir/GettyStúlkan segir að þetta hafi staðið yfir í nokkrar sekúndur til að Johnson sagði að ef þetta myndi halda áfram þá yrði hann að stunda kynlíf með henni. Spurð hvernig henni leið eftir á var svar hennar: „Ekki mjög vel. Eins og ... ég veit það ekki. Ég varð fyrir vonbrigðum með sjálfa mig.“Sjá einnig: Johnson játar kynferðisbrot gegn barni Hún lýsir því að hún hafi í fyrstu ekki viljað stíga fram og reynt að ljúga um atburðina til að vernda Johnson. Hún hafi ekki viljað koma honum í klandur og ekki viljað að skemma knattspyrnuferil hans. „Á þeim tíma gerði ég mér ekki grein fyrir því að þetta var rangt og það sem gerðist var rangt.“Johnson skoraði gegn Liverpool í upphafi mánaðarins en hér fagnar hann marki sínu gegn Newcastle í október.Vísir/GettySögusagnir fóru af stað um stúlkuna og Johnson í skóla hennar og á endanum hafi hún ákveðið að segja foreldrum sínum frá þessu. „Ég hafði ekki áhyggjur af sjálfri mér. Ég var að reyna að vernda hann svo hann myndi ekki missa allt saman. Ég vildi ekki að það yrði nokkuð gert í þessu, en mamma mín sagði að það sem hann gerði var rangt.“ Stúlkan sagði að Johnson vissi hversu gömul hún var, í hvaða skóla hún gekk, að hún væri ársmiðahafi hjá Sunderland og hvaða sæti hún var með á leikvangi félagsins.Sjá einnig: Johnson getur spilað þrátt fyrir kæruna Eftir áðurnefndan fund þeirra hélt Johnson, að sögn stúlkunnar, áfram að senda henni skilaboð og vildi hittast aftur strax næsta dag. Hún neitaði og stuttu síðar fóru sögusagnirnar af stað. Johnson er gefið að sök að hafa vitað aðeins nokkrum klukkustundum eftir að stúlkan hafði fyrst samband við hann að hún væri fimmtán ára gömul og að hann hefði leitað að upplýsingum á internetinu um „legal age of consent“ eða hvenær einstaklingur er lögráða og heimilt samkvæmt lögum að stunda kynlíf. Réttarhöldin standa enn yfir en upplýsingar í þessari grein eru sóttar á vefútgáfu The Guardian.
Enski boltinn Tengdar fréttir Stúlkan stærði sig af sambandinu við Johnson Hin 15 ára gamla stúlka sem knattspyrnumaðurinn Adam Johnson er sakaður um að hafa sængað hjá fór ekki leynt með samband sitt við knattspyrnukappann. 4. mars 2015 10:30 Johnson laus úr steininum Knattspyrnukappinn Adam Johnson er laus úr fangelsi. Í bili að minnsta kosti. 3. mars 2015 10:30 Johnson getur spilað þrátt fyrir kæruna Staða hans hjá Sunderland er óbreytt þrátt fyrir þrjár kærur um að hafa stundað kynlíf með ólögráða einstaklingi. 24. apríl 2015 11:45 Mál Johnson tekið fyrir í lok maí Búið er að ákæra knattspyrnukappann Adam Johnson í þremur liðum eftir að hann sængaði hjá 15 ára stúlku. 23. apríl 2015 15:45 Johnson handtekinn fyrir að sofa hjá 15 ára stúlku Fær ekki að spila fyrir Sunderland á meðan lögreglurannsókn stendur yfir. 2. mars 2015 21:00 Johnson ekki með Sunderland um helgina Adam Johnson verður ekki með Sunderland þegar liðið tekur á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í hádeginu á laugardaginn. 11. febrúar 2016 13:00 Sunderland rekur Johnson Enska úrvalsdeildarfélagið Sunderland hefur rekið Adam Johnson en hann hefur játað á sig kynferðisbrot gegn barni. 11. febrúar 2016 20:18 Johnson má æfa með Sunderland á ný Var handtekinn fyrir að sofa hjá 15 ára stúlku. 18. mars 2015 22:45 Johnson játar kynferðisbrot gegn barni Adam Johnson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland, hefur játað fyrir rétti að hafa brotið kynferðislega gegn stúlku undir samræðisaldri. 10. febrúar 2016 13:18 Johnson var átrúnaðargoð stúlkunnar sem hann misnotaði Stúlkan sem Adam Johnson, fyrrverandi leikmaður Sunderland, braut kynferðislega gegn var mikill aðdáandi fótboltamannsins. Þetta kom fram fyrir rétti í dag. 12. febrúar 2016 14:26 Mest lesið Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ Körfubolti Messi skrópaði í Hvíta húsið Fótbolti Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Fótbolti Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Handbolti „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Körfubolti Mo Salah skýtur á Carragher Enski boltinn Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun Fótbolti Nýja elsta kona heims elskar fótbolta Fótbolti Halla forseti bauð þeim báðum á Bessastaði Sport Orðaður við íslenska landsliðið en þykir líklegur til að taka við Molde Fótbolti Fleiri fréttir Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Son framlengir við Spurs West Ham búið að bjóða Potter starfið Segir fótboltaguðina á móti Luton Milan og Juventus ásælast framherja United Mo Salah skýtur á Carragher Nottingham Forest upp að hlið Arsenal Sir Alex og United goðsagnir í jarðarför: „Hún hefði kunnað að meta það“ Van Dijk sáttur við frammistöðu Trents á móti Man. United Kenndi Zirkzee um klúðrið hjá Maguire Guardiola vill fá þrennu-Grealish aftur Littler fær að sýna bikarinn á Old Trafford Segir Trent frekar eiga heima í Tranmere en Real Madríd „Ef við gerum það ekki allar stundir munum við tapa leikjum“ „Verðum að halda áfram og við munum gera það“ „Ef við getum þetta á Anfield þá getum við þetta alls staðar“ Þrjú víti og Ipswich áfram í fallsæti Jafntefli niðurstaðan í einum af leikjum ársins Amorim segir leikmenn sína hrædda Fá 21 árs Tékka í miðri markvarðakrísu Stórleikurinn fer fram þrátt fyrir snjóinn „Við stýrðum leiknum ekki nægilega vel“ Pep neitar því að sínir menn séu komnir á beinu brautina Willum Þór skoraði þegar Birmingham tyllti sér á toppinn Arsenal mistókst að setja aukna pressu á Liverpool Slæmt gengi gestanna heldur áfram Meistararnir unnu annan leikinn í röð Isak með Newcastle áfram á miklu flugi Valdi ekki Salah í lið ársins hingað til Miðvörður Chelsea illa meiddur enn á ný Sjá meira
Stúlkan stærði sig af sambandinu við Johnson Hin 15 ára gamla stúlka sem knattspyrnumaðurinn Adam Johnson er sakaður um að hafa sængað hjá fór ekki leynt með samband sitt við knattspyrnukappann. 4. mars 2015 10:30
Johnson laus úr steininum Knattspyrnukappinn Adam Johnson er laus úr fangelsi. Í bili að minnsta kosti. 3. mars 2015 10:30
Johnson getur spilað þrátt fyrir kæruna Staða hans hjá Sunderland er óbreytt þrátt fyrir þrjár kærur um að hafa stundað kynlíf með ólögráða einstaklingi. 24. apríl 2015 11:45
Mál Johnson tekið fyrir í lok maí Búið er að ákæra knattspyrnukappann Adam Johnson í þremur liðum eftir að hann sængaði hjá 15 ára stúlku. 23. apríl 2015 15:45
Johnson handtekinn fyrir að sofa hjá 15 ára stúlku Fær ekki að spila fyrir Sunderland á meðan lögreglurannsókn stendur yfir. 2. mars 2015 21:00
Johnson ekki með Sunderland um helgina Adam Johnson verður ekki með Sunderland þegar liðið tekur á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í hádeginu á laugardaginn. 11. febrúar 2016 13:00
Sunderland rekur Johnson Enska úrvalsdeildarfélagið Sunderland hefur rekið Adam Johnson en hann hefur játað á sig kynferðisbrot gegn barni. 11. febrúar 2016 20:18
Johnson má æfa með Sunderland á ný Var handtekinn fyrir að sofa hjá 15 ára stúlku. 18. mars 2015 22:45
Johnson játar kynferðisbrot gegn barni Adam Johnson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland, hefur játað fyrir rétti að hafa brotið kynferðislega gegn stúlku undir samræðisaldri. 10. febrúar 2016 13:18
Johnson var átrúnaðargoð stúlkunnar sem hann misnotaði Stúlkan sem Adam Johnson, fyrrverandi leikmaður Sunderland, braut kynferðislega gegn var mikill aðdáandi fótboltamannsins. Þetta kom fram fyrir rétti í dag. 12. febrúar 2016 14:26