Erlent

Kastaði krókódíl inn um bílalúgu sér til gamans

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Krókódíllinn sem um ræðir er vafalaust minni en þessi eða um metri á lengd.
Krókódíllinn sem um ræðir er vafalaust minni en þessi eða um metri á lengd.
 Tuttugu og þriggja ára gamall karlmaður var handtekinn í Flórída í Bandaríkjunum um miðja vikuna fyrir að fleygja lifandi krókódíl inn um bílalúgu á skyndibitastaðnum Wendy’s.

Maðurinn hugðist hrekkja félaga sinn sem vinnur á veitingastaðnum.

Krókódíllinn sem var um metri á lengd var handsamaður og honum komið fyrir í náttúrunni á ný.

Atburðurinn átti sér í stað í október en maðurinn var handtekinn fyrst í gær. Hann mun hafa fundið krókódílinn úti í vegkanti og lokkað hann upp í bíl sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×