
Hvað á að standa á rútu íslensku strákanna á EM í Frakklandi?

Ísland er í riðli með Portúgal, Austurríki og Ungverjalandi á móti í Frakklandi og fyrsti leikur strákanna er á móti Portúgal 14. júní.
Slagorðið sem verður fyrir valinu verður sett á hliðina á rútu íslenska liðsins sem mun flytja íslenska hópinn á milli staða í Frakklandi en íslenska liðið hefur heimastöð í borginni Annecy rétt hjá landamærum Frakklands og Sviss.
UEFA og Hyundai eru með skemmtilegan leik sem snýst um að búa til öflugt slagorð fyrir þjóðirnar sem leika á EM og mun slagorðið sem er valið frá hverri þjóð vera prentað á rútu viðkomandi liðs.
Þátttökufrestur er til 1. mars og því borgar sig að leggja hausinn í bleyti og koma með flott slagorð fyrr en síðar.
Það er hægt að smella hérna til að skoða reglurnar og hvernig það á að skila inn slagorðinu en sá sem verður hlutskarpastur gæti unnið miða á EM í boði Hyundai ásamt öðrum gjöfum.
Tengdar fréttir

Kolbeinn hefur tekið verkjatöflur fyrir hvern einasta leik
Kolbeinn Sigþórsson er feginn því að geta sagt skilið við erfitt ár 2015 þar sem meiðsli settu of stórt strik í reikninginn eftir félagaskipti hans til Nantes. Hann ræðir við Fréttablaðið um mótlætið, markaleysið og gagnrýnina sem hann fékk frá eigin þjálfara.

Alfreð: Fékk aldrei skýr svör um hvers vegna ég var ekki að spila
Íslenski landsliðsframherjinn kveður Aþenu með söknuði þrátt fyrir erfiða tíma hjá Olympiacos.

Englendingar fá miklu færri miða á EM en Íslendingar
Englendingar eru að fá mun færri miða á leiki Evrópumótsins en Íslendingar og þeir hneykslast mikið á því. Enskur blaðamaður sló því upp í Daily Star í gær að litla Ísland sé að fá átta þúsund fleiri miða en stórveldið England.

Heimir: Eru að tefla fram reynslumiklu liði annað kvöld
Heimir Hallgrímsson, annar þjálfari íslenska landsliðsins, er þakklátur fyrir tækifærið sem leikur morgundagsins gefur þjálfurunum til þess að skoða leikmenn sem hafa verið utan hóps til þessa.

Ísland-Portúgal einn af áhugaverðustu leikjunum í riðlakeppni EM 2016 að mati Telegraph
Eins og alþjóð veit var dregið í riðla fyrir EM 2016 í Frakklandi í gær.

Eins og ef Lars Lagerbäck ætlaði að velja Aron Jóhannsson
Didier Deschamps, þjálfari franska landsliðsins, hefur ekkert verið mikið að koma sér undan því að tala um þá leikmenn sem koma til greina í EM-hópinn fyrir Evrópumótið í sumar en hann var kannski aðeins of fljótur á sér í sjónvarpsviðtali á dögunum.

Lars og Heimir í hópi bestu þjálfara ársins hjá World Soccer
Hið virta knattspyrnutímarit World Soccer er búið að gera upp árið með árlegum útnefningum sínum og að þessu sinni á Ísland fulltrúa af tveimur listum af þremur.