Fótbolti

Toni: Fór næstum því að slást við Van Gaal

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Toni er hann var á mála hjá Bayern.
Toni er hann var á mála hjá Bayern. vísir/getty
Samband framherjans Luca Toni og þjálfarans Louis van Gaal var ekki alltaf gott er þeir voru báðir hjá Bayern München.

Hinn 38 ára gamli Toni er að fara að leggja skóna á hilluna eftir 22 ára feril og hefur upp á síðkastið rifjað upp gamlar sögur.

Hann er fallinn úr ítölsku úrvalsdeildinni með Hellas Verona og samband hans og þjálfarans, Luigi Delneri, hefur ekki alltaf verið upp á marga fiska.

„Okkur kom ekki vel saman en ég vil ekki tala um það þar sem við erum búnir að hreinsa loftið,“ sagði Toni.

„Ég hef lent í því verra á ferlinum. Sérstaklega þegar Van Gaal var að þjálfa mig hjá Bayern. Þá vorum við næstum því farnir að slást.“

Toni fór ekki frekar í saumana á þessu máli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×