Fótbolti

Arnór Ingvi á leið til Austurríkis

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnór Ingvi Traustason.
Arnór Ingvi Traustason. vísir/ifk norrköping.se
Það hefur verið í kortunum í nokkurn tíma að landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason færi til Austurríkis og nú er það að verða að veruleika.

Rapid Vín hefur komist að samkomulagi við sænska félagið Norrköping um að kaupa Arnór Ingva. Kaupverðið er sagt vera í kringum 280 milljónir króna.

Arnór Ingvi hefur farið mikinn í liði Norrköping sem varð sænskur meistari á síðustu leiktíð.

Hann hefur einnig spilað afar vel fyrir íslenska landsliðið og verður líklega í EM-hópnum sem verður tilkynntur á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×