Tölur gærkvöldsins sýna að Rooney á framtíðina fyrir sér á miðjunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. maí 2016 09:15
Wayne Rooney skoraði og lagði upp mark í 3-1 sigri Manchester United á Bournemouth á Old Trafford í lokaleik ensku úrvalsdeildarinnar í gær. Wayne Rooney lék á miðjunni í gær og eftir leikinn talaði hann sjálfur um það að þar sjái hann sig í framtíðinni. Wayne Rooney skoraði fyrsta mark leiksins og lagði upp það þriðja fyrir Ashley Young. „Stundum þarftu að taka réttu ákvarðanirnar á þínum ferli og eins og staðan er núna þá er betra fyrir mig að spila aftar á vellinum," sagði Wayne Rooney við BBC eftir leikinn. „Það gæti verið öðruvísi hjá enska landsliðinu þar sem ég gæti áfram spilað sem framherji en ég sé fyrir mér að ég spili á miðjunni hjá United á næsta tímabili," sagði Rooney. BBC sýndi það með tölfræði Wayne Rooney frá því í leiknum í gær að miðjustaðan ætti að henta fyrirliða liðsins vel. Wayne Rooney gaf 100 sendingar í leiknum eða meira en allir aðrir leikmenn Manchester United og 88 prósent þeirra heppnuðust. Wayne Rooney komst 115 sinnum í boltann eða meira en allir aðrir leikmenn Manchester United. Wayne Rooney átti tvo skot í leiknum eða jafnmikið og Juan Mata. Enginn annar leikmaður Manchester United náði því. Wayne Rooney reyndi 65 sendingar á sóknarvelli eða meira en allir aðrir leikmenn Manchester United og 83 prósent þeirra heppnuðust. Wayne Rooney vann boltann tólf sinnum eða oftar en allir aðrir leikmenn Manchester United. Wayne Rooney átti þrjár lykilsendingar í leiknum, sendingar sem sköpuðu færi, og þar af var ein stoðsending. Enginn annar leikmaður Manchester United náði því. Harry Kane (Tottenham), Jamie Vardy (Leicester), Daniel Sturridge (Liverpool) og Marcus Rashford (Manchester United) eru allir í EM-hópnum hans Roy Hodgson og það er því nóg af möguleikum í framherjastöður landsliðsins á EM í sumar spili Rooney aftar á vellinum. „Ég er viss um að Roy Hodgson hafi sínar eigin hugmyndir um hvað hann telji vera besta staðan fyrir mig. Ég gæti vissulega spilað á miðjunni í enska landsliðinu en Roy ræður þessu. Við munum ræða málin þegar liðið kemur saman og þá segir hann mér hvar hann vill að ég spili," sagði Rooney. Wayne Rooney vantar nú aðeins 4 mörk til að jafna félagsmet Bobby Charlton sem skoraði á sínum tíma 249 mörk fyrir Manchester United. Rooney er þegar búinn að taka metið af Bobby Charlton yfir flest mörk fyrir enska landsliðið.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu stikluna fyrir Kanann: „Þegar hann sagði Ísland hugsaði ég bara um ísbirni“ Sport „Ævintýri og lygar í boði sumra ykkar“ Enski boltinn Lárus: Það er best að hitta þá ekki eftir svona leik Körfubolti Grótta náði í stig gegn meisturum FH Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 88-89 | Háspenna í grannaslagnum Körfubolti „Stóðum upp sterkari og svöruðum með sigri“ Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikur og öll lætin gerð upp í Körfuboltakvöldi Körfubolti Styrmir reif til sín flest fráköst Körfubolti Sjáðu ótrúlegt mark Sigvalda í Meistaradeildinni Handbolti Ýmir dýrmætur í fyrsta sigrinum Handbolti Fleiri fréttir „Ævintýri og lygar í boði sumra ykkar“ Mainoo frá í nokkrar vikur Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Pogba segir að danssagan sé lygi Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Hlerunarbúnaður í klefa United á Villa Park tók upp ræður Ten Hag Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Saka sendur heim vegna meiðsla Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Saka fór meiddur út af Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Sjá meira