Enski boltinn

Hull í góðum málum gegn Derby

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn Hull fagna marki.
Leikmenn Hull fagna marki. vísir/getty
Hull City er í kjörstöðu um að tryggja sér sæti í úrslitaleiknum um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir 3-0 sigur á Derby í fyrri leik liðanna.

Hull, sem lék í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, komst yfir með marki Abel Hernandez eftir hálftíma leik.

Tíu mínútum síðar varð svo Jason Shackell fyrir því óláni að skora í sitt eigið mark og koma Hull í 2-0. Þannig stóðu leikar í hálfleik, en þriðja markið kom ekki fyrr en í uppbótartíma. Það gerði Andrew Robertson með skoti í uppbótartíma. Lokatölur 3-0.

Þetta lítur rosalega vel út fyrir Hull fyrir síðari leik liðanna sem fer fram á þriðjuadginn.

Sigurliðið mætir Brighton eða Sheffield Wednesday í úrslitunum um laust sæti, en fyrri leikur þeirra fór 2-0 fyrir Sheffield á heimavelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×